Þvílík snilld að vera 5 mín heim úr vinnunni á háannatíma :) Annars ganga flutningarnir og undirbúningurinn vel. Eldhúsið komið og næstum öll eldhúsáhöldin og fötin okkar í fataskápana.
Á morgun verður svo aðaldagurinn þar sem sendibíllinn mætir á svæðið og flytur allt sem eftir er. Eftir það verð ég svo officially flutt að heiman. Ég næ þá að flytja að heiman 25 ára :)
Á morgun verður svo aðaldagurinn þar sem sendibíllinn mætir á svæðið og flytur allt sem eftir er. Eftir það verð ég svo officially flutt að heiman. Ég næ þá að flytja að heiman 25 ára :)

6 Ummæli:
Þetta er glæsilegt hjá ykkur, bara innilega til hamingju enn og aftur og ég hlakka til að koma í heimsókn!
þú verður nú að senda manni myndir. Tillyke með flutninga.
Til hamingju með að vera flutt! Ég hlakka til að kíkja í heimsókn næst þegar ég verð stödd á klakanum :)
Til hamingju með flutningana :) Hlakka til að kíkja í heimsókn til ykkar.... Vonandi hefur allt gengið vel í dag!!
Frábært! Hlakka til að sjá íbúðina og ykkur!
Takk kærlega fyrir þetta. Þið eruð allar velkomnar þegar þið eigið leið hjá (eða verðið á landinu):)
Já spurning hvort ég reyni að setja inn myndir eða sendi ykkur, það ætti ekki að vera mikið mál nema netið kemur ekki heim fyrr en eftir nokkra daga.
Skrifa ummæli
<< Heim