þriðjudagur, mars 28, 2006

Eftir vikudvöl í Fossvoginum var hringt á bjöllunni hjá mér og Vottar Jehóva mættir á svæðið. Þarna kom sér svo sannarlega vel að vera með dyrasíma og búa í blokk þannig ég gat bara afþakkaði pent. Ég skil ekki alveg hvernig þetta fólk nennir að standa í þessu, ef maður hefði áhuga á að kynna sér Biblíuna eða trúarbrögð þá bara myndi maður sækjast eftir því sjálfur eða ég myndi bara gera það ekki fá einhverjar konur inn til mín til að segja mér frá þessu.

Það hefur annars verið alveg nóg að gera í að taka á móti gestum sem er bara gaman og allir ávallt velkomnir.

Annars heilsast öllum vel og ég meira að segja skrapp aðeins í ræktina áðan því ég fékk alveg nóg af átinu í mér hehe..ágætt að fá smá löngun til að hreyfa sig. En ég var nú ekkert að hlaupa einhverja 10 km þannig no worries, tók bara svona létt á því og fékk mér Boozt í kvöldmat þannig manni líður bara ansi vel.

Stóri dagurinn er orðinn 15. ágúst sem okkur finnst bara ansi fínn dagur, góður vinur Þrastar á afmæli þennan sama dag og svo er mamma þarna 10 dögum seinna. Þannig ef það verður ekki 15. þá verður maður að reyna að þrauka til 25. ágúst :)

10 Ummæli:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Já það væri ekki leiðinlegt fyrir mömmu þína að fá einn lítinn púka í afmælisgjöf ;)
Gaman að heyra að ykkur heilsast vel...

10:40 e.h.  
Blogger Inga sagði...

Hey, litli frændi minn verður sko enginn "púki" .. þetta verður sko algjör engill !!!

12:01 e.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Já ég mæli með því að passa uppá mataræðið og hreyfa sig á meðgöngunni... ekki ætla ég að gera sömu mistökin aftur næst þegar ég verð ólétt og breytast í hval... ég hreyfði mig nú samt aðeins, en þegar mér var farið að líða einsog fíl á hlaupabrettinu þá gafst ég endanlega upp!
Nei Inga, púkar eru sko miklu skemmtilegri en englar þó maður þurfi kannski að hafa aðeins meira fyrir þeim ;)

7:40 e.h.  
Blogger Inga sagði...

ok ég man þetta þegar ég eignast púka .. þá verður þú barnapía nr 1 :)

7:54 e.h.  
Blogger Björk sagði...

mér fannst 14. ágúst svo sniðugur því það var einmitt dagurinn sem ég átti að fæðast;)
En 15. ágúst er flottur.

8:52 e.h.  
Blogger Unnur Ylfa sagði...

Ja mér er ekki farið að líða eins og hval alveg strax en svona eins og ég sé með slatta af aukakílóum á mér.
Ég held annars að það séu ekki miklar líkur á að barnið fæðist 15. ágúst minnir að einhver hafi sagt mér að 3% barna fæðist á réttum degi en we´ll see vonandi bara að maður fari ekki eitthvað brjálað framyfir því maður verður eflaust orðinn þreyttur og eins og hvalur hehe...

9:00 e.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

14.ágúst er náttúrulega dagurinn til að fæðast!! Ekki spurning Unnur mín hehe.

12:46 e.h.  
Blogger Regína sagði...

Sammála Oddnýu:) Þú lítur vel út! Fyndið að við höfum allar vinkonurnar giskað á rétt kyn:) Í sambandi við hreyfinugu, þá var ég í yogafitness í gær og þar var ein kaaasólétt sem fór létt með allar æfingarnar, nema þegar það átti að liggja á maganum;) Ég dáðist af því hvað hún var dugleg þrátt fyrir þessa risastóru bumbu. Þú verður pottþétt spriklandi í ræktinni þegar barnið vill fara að komast út;)

9:03 f.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Ég fór í meðgöngujóga síðustu vikurnar. Það var mjög fínt, ég mundi samt ekki fara þangað nema bara rétt undir restina. En ég held að það sé mjög sniðugt að fara bara í venjulegt jóga fyrstu mánuðina, fyrir utan hvað æfingarnar eru góðar þá æfir þetta öndunina.

5:00 e.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Hæ hæ. Var bara að komast að því að þú værir ólétt. En æðislegt, innilega til hamingju til ykkar beggja og gangi allt vel :)
Svo verður við líka nágrannar bráðum. Við fjölskyldan stefnum á að flytja næstu helgi í Hellulandið.
Bestu kveðjur, Unnur Agnes og gaurarnir tveir.

12:22 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Heim