Helgin var nú ansi pökkuð hjá mér en það sem stendur nú uppúr er fermingin hjá Árna Frey. Hann fermdist á sunnudaginn í Árbæjarkirkju og byrjaði athöfnin hálf 11 um morguninn og svo var veislan seinnipartinn þar sem alveg dýrindis matur var á boðstólnum. Þetta var alveg mjög vel heppnuð veisla og gaman að hitta alla ættingjana og alla sem komu í veisluna. Það lág við að ég væri spenntari en fermingarbarnið við að opna alla pakkana eftir veisluna hehe... en hann fékk fullt af fallegum og skemmtilegum gjöfum.
Íslandsmótið í badminton var líka um helgina og kíkti ég aðeins niður í TBR á laugardaginn en varð að láta það duga að fylgjast bara með í sjónvarpinu á sunnudaginn þar sem nóg var að gera við að undirbúa veisluna og stússast í kringum hana.

5 Ummæli:
Til hamingju með bróður þinn!
Já segi bara það sama, innilega til hamingju!
Til lukku með bróður þinn :)
Segji það sama og hinar, til hamingju með brósa :)
Takk takk
Skrifa ummæli
<< Heim