Það væri gaman að mæla það hvort afköst minnki ekki í þessum mánuði vegna HM í fótbolta. Það er allavega fín stemning í vinnunni hjá mér og veðbankar í gangi. Ég tók þátt í þessum leik og maður átti að spá fyrir um leikina og ég var nú bara fyrir ofan meðaltal eftir leiki helgarinnar sem ég held að sé bara ágætt. En það er ótrúlega gaman að taka þátt í þessu og allir voða spenntir að fylgjast með úrslitum leikja.

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim