Þá er þessari törn að ljúka hjá mér þ.e. skólinn og vinnan og hún endaði svo sannarlega með stæl. Þetta var alveg meiri dagurinn, þvílík action og hraði í þessum fjármálaheimi sem gerir þetta svo skemmtilegt allavega þegar allt gengur upp og endar vel. Sem dæmi um það hvernig dagurinn var þá tók ég jógúrt með mér í vinnuna sem ég ætlaði að borða í morgunmat kl. 9 í morgun en kom með það heim aftur þar sem ég bara hreinlega hafði ekki tíma til að svo mikið sem opna það. Það var sem betur fer smá tími fyrir hádegismat samt bara svo þið haldið ekki að ég hafi bara svellt :)
Kúlan stækkar alveg talsvert mikið þessa dagana og eiginlega finnst mér ég sjá dagamun.
Á morgun er ég annars að fara í Adventure Tour í vinnunni sem er mjög spennandi, verður lagt af stað kl. 3 og bara ég hef ekki hugmynd um hvað verður gert. Búið að skipta í 3 lið, einn liðstjóri, erum búin að velja nafn á hópnn og fengum sólgleraugu og rosa stemning. Verður spennandi að vita hvað verður gert læt ykkur vita af því síðar.

2 Ummæli:
Þú verður að passa þig á stressinu í vinnunni.. þó þú fílir það vel þá er ekki víst að krílið geri það!!!
Það er nú gott að allt stressið sé búið hjá þér, skólinn og vinnan... Góða skemmtun í dag og hafðu það gott :)
Skrifa ummæli
<< Heim