sunnudagur, júlí 30, 2006

Allt gengur sinn vanagang hjá okkur. Kúlan og barnið stækka og stækka og eru það 38. vikur á þriðjudaginn og talað er um að full meðganga sé 38. - 42. vikur. Alveg ótrúlegt að það sé bara að fara að koma að þessu fljótlega eða allavega í mánuðinum. Við foreldrarnir hlökkum bara rosa mikið til að sjá hvernig litli snúðurinn mun líta út og takast á við þetta verkefni ef það má kalla það þannig.

Ég ætla að minnka við mig vinnu frá og með 1. ágúst sem verður mjög fínt en kannski skrýtið að vera bara að vinna hálfan daginn.

Helgin er annars búin að vera mjög fín, tókum okkur frí á föstudaginn og drifum okkur upp í sumarbústað í sældarlífið þar. Alltaf jafn notalegt að vera þar, fara í pottinn, borða góðan mat og slaka á.
Við komum í bæinn seinnipartinn í gær og fórum í fertugsafmæli til frænda míns og partý hjá vinum Þrastar. Bara mjög skemmtilegt kvöld.
Í kvöld eru það svo tónleikar með Sigurrós á Miklatúni sem maður má nú ekki láta sig vanta á, þeir eru svo miklir snillingar.

7 Ummæli:

Blogger Regína sagði...

Ég hlakka líka til að sjá hvernig litli Þrastarson mun líta út;)

7:53 f.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Til hamingju með drenginn !
Kveðja Júlli og fjölskylda !

1:15 e.h.  
Blogger Regína sagði...

Hæ hæ! Svo var snáðinn bara kominn í heiminn þegar ég skrifaði athugasemdina að ofan... og ég vissi ekkert...;)

Innilega til hamingju með litla kút!!! Hlakka til að sjá ykkur!

1:53 e.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Til hamingju með snáðann, við hlökkum mikið til að sjá hann!

8:20 e.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Innilega til hamingju!!!!!

8:49 e.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Sæl og blessuð, innilega til hamingju með drenginn. Fékk fréttirnar frá Önnu Lilju. Gangi ykkur vel.
Kveðja,
Irena

2:36 e.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Mig langaði bara að óska ykkur aftur til hamingju með prinsinn :) Hlakka til að sjá myndir af honum!

10:56 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Heim