laugardagur, júlí 15, 2006

Jæja fer ekki að koma tími á smá uppfærslu. Ég verð nú að byrja á að tala aðeins um veðrið það er ótrúlega fyndið að það er svona líka mikið haustveður úti alveg grenjandi rigning og hífandi rok úti og mann langar bara ekkert að fara út úr húsi en vonandi lagast þetta næstu daga en það er reyndar ágætt að hafa einhvern svona innidag líka.

Björk og Hlynur áttu afmæli á fimmtudaginn 13. júlí og héldu partý í gærkvöldi, innilega til hamingju með daginn aftur kids. Við byrjuðum reyndar í grilli hjá Báru og Kalla sem var rosalega fínt og gaman. Þau tiltölulega nýflutt í nýja húsið sitt sem var alveg glæsilegt. Eftir grillið fórum við í afmælispartýið og var alveg fullt af fólki og mjög gaman að hitta alla og flestir orðnir mjög hressir líka því við komum því miður svo seint.

Í dag er það svo bara að slappa af en fara í skírnaveislu seinni partinn. Við höfum nú ekki farið í margar skírnaveislur undanfarið en munum líklega halda eina slíka á næstu mánuðum þannig ég hlakka til að sjá hvernig þetta allt verður. Það er verið að fara að skíra litlu prinsessu Báru og Svavars.

Óléttan gengur annars bara rosalega vel og fer ég í mæðraskoðun i hverri viku þannig það er líka gott að vita að það er fylgst vel með manni á lokasprettinum. Í dag er akkúrat mánuður í áætlaðan fæðingardag en það eru nú ekki miklar líkur á að barnið komi í heiminn akkúrat þann dag en verður spennandi að vita hvaða afmælisdag hann velur sér :)

Ég er annars alveg húkt á Greys Anatomi þessar vikurnar og horfi örugglega a svona einn þátt á dag þessir þættir eru algjör snilld og mæli ég sko alveg með þeim. Ég set þá í sama sæti og 24 og Desperate.

4 Ummæli:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Hæ hæ,

Gott að lesa að þér gengur vel á meðgöngunni:) Langt síðan mar hefur séð þig skvís, spurning um að þú bjóðir manni í heimsókn í "nýja" húsið....
Svo er ég viss um að erfinginn skilar sér í heiminn þann 14.ágúst, þar sem það er svo góður afmælisdagur:)

Bestu kveðjur
Vigga

12:56 f.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Vá ég er líka orðin húkkt á Grey's Anatomy! Gott að þér líður vel svona á lokasprettinum :)

9:22 e.h.  
Blogger Regína sagði...

Gott að heyra að bumbulíus spjarar sig vel og að þú hefur það gott!

Oh, ég er svo sammála þér með Greys Anatomy eða Greys hvide verden;) Því miður eru þættirnir komnir í sumarfrí hér í DK þó að 2. sería sé ekki búinn (Danir eru ótrúlegir hvað þetta varðar...). En þarf að reyna að "downloda" þessu einhversstaðar... einvherjar hugmyndir hvar ég get nálgast þættina?

12:22 f.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Gott að heyra að allt gangi vél og þú dafnar vel. Þú getur hlakkað til þetta er alveg æði það sem framundan er. Ég er líka geðveikt hrifin af Greys anatomy það er ferlega fínir þættir. Hlakka til að fylgjast með.
Knus frá DK
Aðalheiður, Davíð og Björk

6:36 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Heim