föstudagur, ágúst 11, 2006

Held það sé kominn tími á smá fréttir þar sem litli prinsinn okkar nennti ekki að hanga lengur í maganum og ákvað bara að láta sjá sig.

06.08.06 var semsagt dagurinn sem hann lét sjá sig rúmlega 4 um daginn. Ég get nú ekki annað sagt en að þetta hafi bara gengið allt mjög vel þrátt fyrir að það hafi fattast á síðustu stundu að hann hafi verið sitjandi. Þá voru góð ráð dýr hvort ég ætti að fæða hann eða fara í keisara. Það var eiginlega orðið of seint að fara í keisara þannig málið var bara að koma honum sitjandi í heiminn og það gekk og bara hreint ekkert illa. Hann var 13 merkur og 49 cm og rosalega sætur :)

Fyrstu dagarnir hafa bara farið í að hugsa um litla prinsinn okkar, kynnast honum, gefa honum að drekka og bara stjana í kringum hann.

Það hafa margir komið í heimsókn og ég held hann bræði bara alla sem sjá hann enda enginn smá sjarmör hér á ferð.

Takk kærlega fyrir allar kveðjurnar hvort sem þær hafa verið í smsi, e-maili, hérna á síðunni, síma eða bara face to face.

Við erum rosalega stoltir foreldrar og ég held ég verði að segja að þetta er örugglega það magnaðasta sem við höfum upplifað að koma svona litlu kríli í heiminn og eitt af þessum stundum í lífinu sem maður mun aldrei gleyma.

9 Ummæli:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Til hamingju Unnur og Þröstur með litla prinsinn. Gaman að lesa um fæðinguna...þrátt fyrir pínu sjok að sjá að hann ákvað að koma sitjandi. En gott að heyra að allt gekk vel. Það væri gaman að fá að sjá mynd af honum...getið þið sett einhverjar inn eða sent á okkur baun0606@yahoo.dk.

Knus og kram frá Danmörku

10:08 f.h.  
Blogger Inga sagði...

Ég get sko staðfest það að litli prinsinn er algjör sjarmur... ég varð gjörsamlega heilluð af honum og hlakka rosalega til að fylgjast með honum vaxa og dafna!!!

1:43 e.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

´Til hamingju með prinsinns :) Getur maður ekki séð einhversstaðar myndir af töffaranum :) Eru þið ekki komin með eina fræga barnalandssíðu?

8:18 f.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Úbbs gleymdi að gera kveðja Áslaug Hin og co :)

8:18 f.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Sæl, ætlaði að athuga hvort það væru komnar inn myndir af afmælisbarninu mínu :)

Kv.Irena

4:13 e.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Innilega til hamingju með litla prinsinn og gott að allt gekk vel þrátt fyrir sitjandi fæðingu.. !!! Sara sýndi mér eina mynd af honum.. ekkert smá sætur strákurinn :) Við Birta Ósk bíðum spenntar eftir að hitta ykkur ;)
Kveðja Vigdís (Söru vinkona)

5:58 e.h.  
Blogger Unnur Ylfa sagði...

Takk kærlega, ég bara kann ekki að setja inn myndir hérna á þessa síðu.

En planið er að fara að búa til síðu handa prinsinum og þá getið þið fylgst með honum. Ég skal reyna að gera það í vikunni :)

10:53 e.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Innilega til hamingju enn og aftur með litla sæta strákinn ykkar. Hann er algjört æði drengurinn, ekkert smá sætur:) Takk líka aftur fyrir hádegismatinn um daginn, oh það var æði að fá að vera með honum og halda á litla frænda;)Ég mun verða fastagestur á næstunni elsku vinkona. Gaman að heyra í þér áðan líka og heyra að allt gengur vel.
Við sjáumst í vikunni.
Stórt knús frá mér.
Kveðja,
Sassa frænka

11:15 e.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

innilega til hamingju med prinsinn. hann er rosa saetur,hlakka til ad mata hann og sja hann i eigin personu!!! kvedja ur solinni i swiss,oddny og gusti

2:34 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Heim