Þá er litli snúðurinn orðinn meira en 1 mánaða eða akkúrat 5 vikna í dag. Tíminn líður alveg svakalega hratt mér finnst reyndar eins og hann hafi verið hluti af lífi okkar miklu lengur.
Ég meirað segja skellti mér út á föstudagskvöldinu og get því talað um eitthvað annað en bara móðurhlutverkið hehe... Það var haustfagnaður í vinnunni og ákvað ég að kíkja þangað. Við byrjuðum á því að hittast á Vegamótum og borða saman og fannst mér algjört æði að komast á Vegamót þar sem það er eiginlega uppáhalds veitingastaðurinn minn það er svo mikið af góðum réttum þar. Eftir matinn fór ég heim og þurfti að gefa litla prinsinum mínum að borða. Fyrst ég var nú líka búin að taka mig til og mála mig og svona að þá varð ég nú líka að kíkja í sjálft partýið sem var haldið á Nordica. Það var ekkert smá gaman að hitta alla og svo voru hljómsveitirnar hreint ekki slæmar. Ég missti því miður af Jeff Who mig langaði svo að sjá þá en ég sá Papana sem komu á eftir þeim og þeir voru mjög skemmtilegir. Ég verð nú samt að viðurkenna það að ég var ansi þreytt í gær þó svo að ég hafi nú ekki verið lengi kom heim rúmlega 12 þannig ég veit ekki hvernig ég hefði verið ef ég hefði verið lengur og ég tala nú ekki um ef ég hefði fengið mér eitthvað að drekka :) Ég þarf líklega að vinna upp þol í þessum bransa hehe

2 Ummæli:
Það er naumast djammið á þér stelpa!!! Alltaf gaman að skemmta sér vel!
Gaman að þú skulir hafa getað kíkt aðeins út sjálf :) Get samt ímyndað mér að það hafi verið skrítið að vera í burtu frá litla snúllanum!
Skrifa ummæli
<< Heim