fimmtudagur, september 21, 2006

Nú er aðeins farið að reyna meira á það að vera heimavinnandi húsmóðir. Ég verð eiginlega að segja það að það er bara alveg ágætt og búið að vera svo mikið að gera hja mér að ég næ bara varla að taka til og þvo þvott hehe.

Við mæðginin erum byrjuð í leikfimi saman. Það er þannig að fyrst byrja mömmurnar að hita upp og gera æfingar og börnin eru stillt á meðan og svo þegar þolinmæðin fer að minnka hjá krökkunum að þá fa þau að vera með og við gerum æfingar með börnin. Mér finnst þetta mjög sniðugt t.d. þegar við gerum magaæfingar þá æfa börnin sig að sitja ofan á maganum og svo eru lika gerðar æfingar fyrir börnin til að æfa hreyfiþroska þeirra.
Þannig drengurinn byrjaður í íþróttum aðeins 6 vikna gamall hehe..maður verður að fara að kynna honum fyrir hinum ýmsu íþróttagreinum.
Ég mæli allavega alveg með þessu fyrir nýbakaðar mæður og verð ég að viðurkenna að ég fékk alveg harðsperrur í lærin og hendurnar eftir fyrsta tímann og var bara mjög þreytt sem segir mér það að formið er alveg hrikalegt o.þ.a.l. nauðsynlegt að byrja bara rólega áður en maður fer á fullt :)

Planið er að skíra litla snúðinn okkar á laugardaginn heima hjá mömmu og pabba. Við ætlum bara að hafa litla skírn með nánustu ættingjunum og mér heyrist fólk vera orðið ansi spennt að vita hvað hann á að heita.

En jæja ég held ég verði nú að fara að vekja drenginn bara hann er búinn að sofa næstum í allan dag og mig sem langar svo með hann út að labba í góða veðrinu en spurning hvort hann vilji fara aftur að sofa.

4 Ummæli:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Já þetta hljómar mjög skemmtilega! Hann verður örugglega badmintonstjarna eins og móðirin :)
Þú verður eiginlega bara að senda okkur sms eða blogga nafnið eftir skírnina svo við springum ekki úr forvitni og verðum hringjandi í tíma og ótíma í skírninni ;)

9:22 e.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Fáum við engin hint um nafnið???

9:27 e.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Greinilega lítill íþróttaálfur hér á ferð... :)
En innilega til hamingju með daginn í dag....

10:04 f.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

til hamingju með nafnið, rosa flott:)
kv oddný

5:20 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Heim