þriðjudagur, október 03, 2006

Jæja þá er ég orðin jafn þung og þegar ég var komin ca 12 vikur á leið og ekkert sást á mér og vonandi fjúka þessi 2-3 kg sem eftir eru bara sem fyrst. Ótrúlegt samt því ég get ekki sagt að ég sé búin að vera að hreyfa mig eitthvað mikið. Er í leikfimi 2x í viku og reyni svo að fara út að ganga þegar veðrið er gott. Ég held samt að ef það er eitthvað neikvætt sem hægt er að setja út á það að vera ólétt eða eignast barn þá held ég að það sé hvað maður þyngist mikið. Ég var hætt að nenna að stíga á vigtina undir lokin og maður braut hverng múrinn á fætur öðrum hehe...og vonandi verð ég bara aldrei aftur jafn þung nema ef ég verð kannski einhvern tíman aftur ólétt hehehe...

Ég er aðeins byrjuð að læra í spænskunni en ég hef annars ekki gefið mér mikinn tíma í það en ætla að reyna að taka smá slurk í vikunni þar sem það á að skila einhverju stóru verkefni á föstudaginn og ekki má ég klikka á því.

Ég vona að veðrið haldist áfram svona gott svo ég komist áfram út í göngutúr.

Það hefur annars verið alveg nóg að gera hjá okkur mæðginunum fórum að hitta bankastelpurnar í gærkvöldi og í síðustu viku hittumst við stelpur sem eigum allar börn núna í sumar og er planið að hittast vikulega.

En jæja þá er það leikfimin á eftir og ekki seinna vænna en að fara að undirbúa það (ótrúlegt hvað maður þarf að byrja snemma að taka sig til þegar maður á að mæta eitthvað á ákveðnum tíma)

6 Ummæli:

Anonymous Nafnlaus sagði...

váá... þú ert ekkert smá dugleg!!! Muy bueno :)

7:08 e.h.  
Blogger Inga sagði...

Tú eres una chica bonita y una muy buena madre!

7:22 e.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Það er sko alltaf nóg að gera hjá þér Unnur mín ;) Það er bara gaman að því.

9:11 e.h.  
Blogger Unnur Ylfa sagði...

Þið megið endilega lauma svona spænsku inn í til að æfa mig hehe...
Inga ég á að skila næsta spænskuverkefni á föstudaginn sjáum til hvort ég geti gert það ein eða hvort ég þurfi að koma skríðandi til þín til að biðja um hjálp heheheh.

9:52 f.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Ef ég þekki þig rétt áttu nú eftir að rúlla þessu verkefni upp :)
Bið að heilsa Andra!!

7:42 e.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Hlakka til að lesa ferðasöguna :)

5:05 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Heim