Ein alveg í bloggham í dag, ég var að velta því fyrir mér hver fann eiginlega upp á fæðingarorlofi?? Þvílík snilld á svona köldum dögum eins og í dag að geta bara legið undir sæng og horft á nýju seríuna af Greys Anatomi á meðan barnið sefur og þurfa ekki að hugsa um vinnuna eða skólann og hafa engar áhyggjur af neinum heimsmálum.
Ég held að það hafi varla liðið sá dagur sem ég hef ekki fengið neina heimsókn sem er bara æðislegt, alltaf einhverjir að droppa við sem mér finnst frábært. Katrín kom til okkar í hádeginu og fékk afgang af þessari líka góðu köku sem var afgangs frá saumaklúbbnum í gær. Ég er að hugsa um að fara að æfa mig meira að baka þá verður ennþá skemmtilegra að koma í heimsókn og fá köku ekki bara að leika við Andra Þór heldur kaka líka og að spjalla við mig er bara svona bónus :)

4 Ummæli:
Ég gæti líka alveg droppað við í Lunch við tækifæri, gef þér nokkra daga til að æfa þig í matseldinni og svo mæti ég :)
ok glæsilegt alltaf gaman að fá skemmtilega gesti og nú er komin pressa á mig hehe..
Hurru gæra!! Hvar fékkstu þessa seríu? Búin að leita útum allt en hef ekki fundið hana :(
Kveðja
Áslaug Hin
Hlakka til að kíkja í heimsókn í Hörðaland fá jólasmákökur og heitt súkkulaði :) (Ég gæti reddað sviss miss)
Skrifa ummæli
<< Heim