Svakalega er nú notalegt að vera bara heimavinnandi húsmóðir í orlofi bara eins og maður sé í löngu sumarfríi. Við Andri Þór getum kúrt saman á morgnana og farið bara á fætur þegar okkur hentar. Við byrjuðum í ungbarnanuddi í gær sem var mjög fínt og verður gaman að læra þetta og geta dekrað við drenginn hann alveg steinsvaf eftir þetta.
Ég þarf að fara að huga að jólagjöfunum er ekki bara best að fara að byrja á þeim og koma sér bara í jólastemninguna. Ég hef alltaf verið frekar mikið jólabarn enda afmæli og jólin á næstum sama tíma
Ég þarf að fara að huga að jólagjöfunum er ekki bara best að fara að byrja á þeim og koma sér bara í jólastemninguna. Ég hef alltaf verið frekar mikið jólabarn enda afmæli og jólin á næstum sama tíma

4 Ummæli:
Jólin eru æðislegur tími, ég hlakka rosalega til! Er nú strax búin að redda nokkrum jólagjöfum, alltaf gaman að gefa sér góðan tíma í það!
Alveg sammála, er algjörlega að spá í að fara að setja upp seríur til að lífga aðeins uppá.
En annars takk kærlega fyrir frábært matarboð í gær!!!!
vá ekki ég, kaupi þetta alltaf á þorlák.
ég hef nú aldrei keypt allar gjafirnar á þorláksmessu en ég man þegar ég var í skólanum og vinna öll jólin að þá byrjaði ég bara 2-3 dögum fyrir jól en einhvern vegin þá reddaðist þetta alltaf. Ég man hins vegar að á aðfangadag var ég yfirleitt búin á því og þurfti yfirleitt að leggja mig.
Núna er planið að vera búin með allar gjafirnar á þorláksmessu og geta bara rölt í bænum með barnavagn :)
Skrifa ummæli
<< Heim