Það er alltaf nóg að gera hjá okkur Andra Þór. Á fimmtudaginn fórum við í heimsókn til Áslaugar og Theodórs Inga með Oddnýju og Söru. Ótrúlegt að Andri Þór og Theodór Ingi eru fæddir á sama árinu en vá alveg þvílíkur þrosakmunur á þeim (Theodór fæddur í janúar og Andri Þór í ágúst) en tíminn er svo fljótur að líða að Andri Þór verður orðinn jafn duglegur og Theodór Ingi áður en við lítum við. Við kíktum líka upp á spítala í heimsókn til Júlíu frænku við höldum að hún sé alveg að fara að eiga litlu dúlluna sína og bíðum spennt eftir litlu prinsessunni.
Þröstur fór á jólahlaðborð með vinnunni sinni í gær og við Andri Þór fórum í laugardagskjúkling upp í Árbæ til mömmu og pabba. Ég horfði í fyrsta sinn á þennan X-factor þátt og ég er ekki enn búin að ákveða hvort mér finnst hann skemmtilegur eða ekki hann var allavega ekkert eitthvað geðveikur og mér fannst þeir hleypa fólki í gegn sem söng bara alls ekki vel en komust þá kannski frekar áfram á fíflalátum.
Annars ekkert mikið plan um helgina en stefnan er tekin á að reyna að taka jólamynd en sjáum hvernig það mun ganga.

1 Ummæli:
Hæ hæ
Gvuð ég væri nú alveg til í að hafa smá jóladót í kringum mig. Mér finnst þú bara ekkert snemma á ferðinni
:-D
Hafið það gott!!!!
kveðja frá Kína
Ásta
Skrifa ummæli
<< Heim