þriðjudagur, nóvember 21, 2006

Mér líður eiginlega eins og ég sé komin í jólafrí, ég tók aðeins upp jóladótið í gærkvöldi og setti eina seríu út í glugga. Ég er kannski svona heldur snemma að skreyta þetta árið en ég er bara rétt að byrja svona aðeins. Ég er eins og lítill krakki þegar kemur að einhverju jólaeitthvað en ástæðan fyrir þessum gífurlega spenningi alltaf í kringum jólin er væntanlega sá að ég á afmæli um jólin líka þannig einhvern vegin hafa jólin alltaf veirð uppáhalds tími ársins hjá mér.

Við erum sem betur fer komin með vetrardekkin undir bílinn þannig við mæðginin getum kannski farið eitthvað út úr húsi í dag. Ég sem hélt að það væri aldrei ófært hérna í Fossvoginum bara í sveitinni uppi í Árbæ en það hefur víst eitthvað klikkað þetta árið.

Ég var að bæta inn einum link hérna til hægri á síðunni hún Ásta sem var með mér í viðskiptafræði er í Kína að læra og það er rosalega gaman að fylgjast með henni og lesa það sem hún er að gera.

Er annars ekki spurning um að fara að koma sér á fætur og gera eitthvað. Planið í dag er annars að fara í ungbarnanudd, stússast eitthvað aðeins og kíkja við hjá Oddnýju sem er í Reykjavík um þessar mundir.

4 Ummæli:

Blogger Inga sagði...

Um leið og 1.des mætir á svæðið þá ætla ég að gera jóló ... finnst samt gott hjá þér að vera bara ofursnemma í þessu! Jólin er svo æðisleg og allt þetta ljósadót í kringum þau gera manni bara gott í þessu skammdegi.

5:15 e.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Takk fyrir komuna í dag, ROSA gaman að sjá ykkur! Svo sjáumst við aftur á fimmtudag :) Og ég er sko líka komin í jólaskap, bara gaman að því;)
Kv. Oddný

1:33 f.h.  
Blogger Unnur Ylfa sagði...

já það er líka örugglega ekki oft sem maður er bara heima allan desember og ekki að vinna þannig er ekki málið að reyna að nýta þennan tíma bara sem best.

Rosa gaman að sjá þig líka Oddný í gær, Andri Þór á sko eftir að vera hrifinn af öllum fiskunum þegar hann verður örlítið eldri.

11:08 f.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

OOO hvað ég öfunda þig að þessu jólastússi í rólegheitunum. Ég er ekki að nenna þessum prófum og mig langar bara að fara að þrífa og skreyta hjá mér... En annars held ég að það sé bara af því að ég er í prófum og get það ekki, ef ég hefði möguleika á því væri ég varla að nenna því held ég hehehe

8:30 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Heim