Er ekki kominn tími til að láta vita aðeins af sér. Mér finnst svo ótrúlegt hvað tíminn flýgur frá manni, ég sem hélt að ég hefði svo mikinn tími til að gera allt fyrir jólin, baka, skreyta fullt, klára jólagjafirnar snemma, skrifa jólakortin og ég hélt einhvern vegin að ég hefði svo mikinn tíma að ég væri bara búin að þessu öllu löngu fyrir jól. En nei.... ég er ekki búin að baka neitt, ekki byrjuð á jólakortunum, bara búin að skreyta smá en ég er reyndar byrjuð að kaupa jólagjafirnar.
Það er eitthvað svo mikið að gera í félagslífinu í desember hehe...
Við fórum og kíktum á einn nýfæddan strák í gær sem var svo pínkulítill að ég hefði bara aldrei trúað því að hægt væri að vera svona lítill. Hann var reyndar fyrirburi fæddist um 10 merkur og var í gær orðinn 11,5 mörk en var samt svo pínkulítill og brothættur. Hvernig gátu mamma og pabbi haldið á mér sem var bara 6 merkur sem er nú bara minni en dúkka liggur við. En hann var allavega rosalega sætur og mikil rúsína þessi litli sem fær nafn um helgina og ég hlakka til þegar hann verður orðinn aðeins búttaðri svo maður bara hreinlega þori að hnoðast með hann. Andri Þór var risi við hliðin á honum :)
Við fjölskyldan erum að fara út að borða í hádeginu með vinum okkar á Lækjarbrekku, í kvöld ætla ég með stelpunum á Vegamót og fá mér að borða umm....ég hef hugsað svo mikið um mat á Vegamótum undanfarna mánuði var sko farin að sakna þess. Á föstudaginn er það svo jólahlaðborð með vinnunni á Skólabrú og á laugardaginn förum við út að borða með saumaklúbbnum mínum. Semsagt brjálað að gera í að fara út að borða spurning hvort maður eigi ekki bara eftir að þyngjast um nokkur kíló á næstu dögum hehe.. og næstu vikum.
Nú fer að reyna aðeins á Andra Þór hvernig hann mun standa sig þegar mamma hans er ekki á staðnum. Vonandi mun ljónseðlið ekki brjótast fram hjá honum en við sjáum til vonandi verður hann bara ljúfur sem lamb og drekkur pelann sinn og hlýðir hehe..

3 Ummæli:
Hae skvis!!
Eg var einmitt um daginn lika ad hugsa um mat a Vegamotum. Mig langadi svo rosalega ad fara tangad og fa mer Panini og bjor...hahaha.
En gangi ter nu vel ad klara allt jolastussid :)
Bid ad heilsa Andra Thor!!
kvedja fra Kina
Asta
Hæ hæ,
verst að komast ekki með ykkur skvísum á Vegamót, en bara síðar. Sjáumst vonandi sem fyrst.
Við enduðum á Óliver og ég fékk mér svo gott að borða klettasalat með parmaskinku, melónum og brie osti alveg þvílíkt gott.
Maður verður greinilega að panta borð ef maður ætlar á Vegamót því það var allt fullt þar.
Skrifa ummæli
<< Heim