sunnudagur, desember 03, 2006

Helgin búin að vera alveg æðisleg hjá okkur litlu fjölskyldunni við vorum í sumarbústað við Álftavatn í Grímsnesi. Aðalástæðan fyrir sumarbústaðarferðinni var því hann Þröstur minn átti afmæli í gær og héldum við upp á afmælið í sveitinni. Foreldrar okkar kíktu í hádegismat í gær og amma Þrastar en annars vorum við bara 3 að hafa það notalegt. Við borðuðum góðan mat, fórum í heitapottinn þegar Andri Þór var sofnaður á kvöldin og bara tókum því rólega.

Á morgun erum við annars að byrja í ungbarnasundi og held ég að foreldrarnir séu miklu spenntari en barnið heheh...Það verður spennandi að sjá hvernig Andra Þór á eftir að líka þetta.

5 Ummæli:

Blogger Inga sagði...

Það er skylda að taka myndavélina með í sundið, það verður nú að festast á filmu hvað Andri Þór er mikill sundgarpur!

8:40 f.h.  
Blogger Unnur Ylfa sagði...

já ekki spurning við verðum eins og verstu túristar með myndavélina á lofti engar áhyggjur og ég skal reyna að setja myndir inn í kvöld

9:15 f.h.  
Blogger Regína sagði...

Hey, þú líka komin með nýtt útlit á bloggið - mjög smart;)

Hlakka til að sjá myndir úr ungbarnasundinu. Það er svo dúllulegt að sjá litlu krílin í sundi.

Knús, Regina

7:39 e.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

voruði í landsbankabústað?

ohh þeir eru svo fínir!

1:32 f.h.  
Blogger Unnur Ylfa sagði...

já vorum í landsbankabústað og ekkert smá fallegt þarna og fínir bústaðir og ekki svo langt frá bænum

1:59 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Heim