þriðjudagur, desember 19, 2006

Þá eru jólakortin tilbúin bara örfá eftir að fara í póst og þá er bara að klára jólagjafirnar samt þungu fargi af manni létt að vera búin að skrifa öll jólakortin. Keyptum okkar fyrsa jólatré um helgina og ég held við verðum að setja það upp eitthvað fyrr til að sjá hvort það verði nokkuð allt of fátæklegt svo við getum bætt skrauti á það.

Mér finnst þessi vika fyrir jól alltaf svo skemmtileg, þá er maður að koma sér almennilega í jólastemninguna klára að kaupa gjafirnar, reyna að hafa fínt eða taka til og ýmislegt stúss. Mér finnst samt smá galli og það er veðrið alveg ömurlegt veður ég nenni varla út úr húsi. Ég ætlaði að fara út í göngutúr og labba með jólakortin í hús sem eru hérna í hverfinu en ég hef ekki enn komist í það ég trúi því varla að ég endi á því að keyra þau eða jafnvel láta senda þau.

Það er alveg ótrúlegt hvað það eru mörg afmæli í desember í fjölskyldunni hans Þrastar, hann á afmæli 2. des, pabbi hans 13. des, Andrea 17. des, Karen 19. des og ég svo 21. des og eru þetta allt nánustu fjölskyldumeðlimir og svo er eitt lítið kríli á leiðinni sem á reyndar ekki að koma fyrr en í byrjun janúar en við sjáum til hvenær það mætir.

Andri Þór hefur það bara fínt og er bara ánægður í sundinu. Við erum að reyna að láta hann fara fyrr að sofa á kvöldin en því miður kostar það að vakna fyrr á morgnana við vorum nefnilega orðin ansi kræf og vorum farin að sofa út á hverjum morgni :)

Jæja ég held að planið í dag sé að reyna að taka til og pakka inn kannski nokkrum jólapökkum. Kaupa afmælisgjöf handa Karen sem á afmæli í dag og kaupa jólagjöf handa Andreu sem verður í Vestmannaeyjum yfir jólin semsagt nóg að gera eins og alltaf.

2 Ummæli:

Blogger Asta 阿斯塔 sagði...

Til hamingju með afmæið skvís!!!
Hlakka til að sjá þig.

knús Ásta

11:43 f.h.  
Blogger Unnur Ylfa sagði...

Takk fyrir það og sömuleiðis

12:06 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Heim