miðvikudagur, desember 27, 2006

Ég held að jólin séu uppáhalds árstíminn minn ég er kannski ennþá svona mikið barn innst inni en einhvern vegin þá er þessi tími alltaf svo skemmtilegur
Við erum með stórt og flott jólatré sem við skreyttum á Þorláksmessu ætli Andri Þór verði ekki með í að skreyta það á næsta ári. Við fjölskyldan vorum hjá mömmu og pabba á aðfangadagskvöld og fengum svo góðan mat og geggjaðan heimalagaðan maltesers ís. Ég held ég hafi aldrei opnað jafn marga pakka áður því við þurftum að opna alla pakkana hans Andra Þórs sem voru nú ekki fáir en það var bara gaman að því. Hann var frekar undrandi á þessu öllu saman, ekki alveg að átta sig á þessu og orðinn mjög þreyttur undir lokin og var steinsofnaður þegar við komum til tengdó seinna um kvöldið.

Á jóladag var jólaboð hjá foreldrum Þrastar og fengum við hangikjöt sem stendur alltaf fyrir sínu. Alveg nauðsynlegt að borða það um jólin.
Á annan í jólum var svo stóra jólaboðið haldið heima hjá mömmu og pabba og er alltaf mikið fjör þar. Það er ótrúlegt hvað þessi fjölskylda getur fjölgað sér hehe..það voru 3 börn sem fæddust á árinu og svona 15 börn sem eru undir 7 ára þannig þið getið rétt ímyndað ykkur fjöldann.Það var dansað í kringum jólatréð og 2 jólasveinar mættu á svæðið sem gáfu börnunum nammi. Andri Þór dansaði í fyrsta sinn í kringum jólatréð en ég var orðin ansi þreytt í höndinni að halda á honum það er eins gott að hann labbi bara sjálfur á næsta ári :)

Styttist í gamlárskvöld og ætlum við fjölskyldan að vera hjá frænku Þrastar þar sem öll fjölskyldan kemur saman. Það er alltaf mikið stuð og mjög hentugt að þau búa bara hérna í hverfinu þannig við getum bara labbað heim.

1 Ummæli:

Blogger Regína sagði...

Mikið hefur þetta verið huggulegt hjá ykkur allt saman.

En 15 börn undir 7 ára! Vá, það er ekkert smá fjölgun í gangi. En það er bara gott mál þar sem við Íslendingar erum allt of fá;)

10:17 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Heim