þriðjudagur, desember 31, 2002

Gamlárdagur kominn, pæliði í því þetta er seinasti dagur ársins, þetta er svo fljótt að líða allt saman. Hmmm...hvað ætli áramótaheitið mitt verði???? flott ég hef allan daginn til að ákveða það

mánudagur, desember 30, 2002

Vá hvað það er gott að vera í fríi og þurfa ekki að gera neitt. En það styttist í að fríið klárist, byrja að vinna 2.jan og vinn fram að skólanum, en það er fínt, manni vantar alltaf pening. Mar getur ekki leikið sér.
Helgin var fín hjá mér, skrapp á djammið á laugardaginn og það var mjög gaman í partýinu en röðin á Hverfisbarnum var algjör killer, það var eins og að vera fremst á brjáluðum tónleikum. Efast um að ég leggi aftur í þessa röð.

föstudagur, desember 27, 2002

Ég er búin að vera að vinna fyrir jólasveininn í dag, rosa gaman að vinna fyrir hann, var að hjálpa honum að setja nammi í poka. Það er nebblega huge jólaboð hérna í dag og fullt af litlum krökkum. Jólasveinninn mætir að sjálfsögðu á svæðið og dansar í kringum jólatréð með öllum og gefur krökkunum nammi. Þetta verður rosa spennandi.

þriðjudagur, desember 24, 2002

Gleðileg jól!!!

laugardagur, desember 21, 2002

Ætla aðeins að afsaka mig smá, það er dáldið mikið að gera hjá mér þessa seinustu daga fyrir jól svo ég hef ekki mikinn tíma til að hanga á netinu og skrifa því eflaust minna á síðuna.
Ég er nebblega að vinna í búð og það er opið til 10 öll kvöld og svo 11 á Þorláksmessu þannig...tíminn sem ég hef til að undirbúa jólin er frekar lítill
Þið sem vissuð það ekki þá á ég afmæli í dag, jibbý, er orðin 22 ára, vá mér finnst það dáldið mikið :)
Ég er alveg búin að fá nokkrar afmælisgjafir, allir svo góðir við mig :) Þið sem eigið eftir að óska mér til hamingju getið enn gert það, hafði cirka korter þar til klukkan verður 12.
Vei, loksins búin í prófum, kláraði þessi seinustu 2 í gær og gekk bara ágætlega. Sæunn útskrifaðist í gær og fór ég í veislu til hennar í gærkvöldi, það var mjög gaman og smá djamm.

fimmtudagur, desember 19, 2002

Minna fólk á að skrifa í gestabókina
Pæliði í því ég á bara eftir að læra í einn dag enn og svo jólafrí, bara dagurinn í dag. Vá, ég get ekki beðið eftir að klára þessi próf, þetta verður strembinn dagur á morgun. Fer í fyrra prófið, Vinnu- og skipulagssálfræði, fá 9-12 og svo bóklega upplýsingatækni frá 13:30 til 15:30.

miðvikudagur, desember 18, 2002

Ég horfði á dáldið fyndna mynd í sjónvarpinu í gær, hún var sænsk en man ekki alveg hvað hún hét. En hún var um konu sem átti 3 börn með 3 mönnum og var með 4 manninum. Hún ákveður að bjóða pöbbum barnanna (semsagt fyrrverandi eiginmönnum) og fjölskyldum þeirra í jólaboð. Núverandi eiginmaðurinn var ekki alveg að meika þetta þegar hinir voru að tala um það hvernig hún væri í rúminu o.fl. Konan tilkynnir í jólaboðinu að hún sé ólétt eftir þá 4 manninn, en þá hafði hann látið gera sig ófrjóan og það skapast þrungin og fyndin stemning í veislunni.

þriðjudagur, desember 17, 2002

vá, það gengur ekkert að læra hjá mér þessa dagana, einbeitingarleysið alveg að fara með mig. Þetta boðar ekki á gott þar sem 2 próf eru eftir.
Bara að minna ykkur á það að ég á afmæli eftir 4 daga :)

mánudagur, desember 16, 2002

Ohhh..af hverju er ekki til Nóa konfekt hérna heima hjá mér. Mamma hefur verið fræg fyrir það að eiga það alltaf til fyrir jólin og svo klárar hún yfirleitt "bestu" molana áður en jólin koma. Núna gæfi ég allt fyrir uppáhalds molann minn, en þá er mamma alveg að klikka á því að hafa ekki keypt konfekt.
Það hefur nú ekki gengið neitt svo vel að læra í dag, einhvern vegin þá get ég bara ekki meira, skil ekki hvað er að mér.
Fór á badmintonæfingu áðan, það var hressandi og gaman. Var samt ekki að gera mitt besta þar, enda varla búin að spila neitt í 3 vikur
Sara kom til landsins í gærkvöldi og vil ég bjóða hana velkomna heim :) Gaman að koma heim í hitann, plís, ég vona að það fari ekki að snjóa því ég nenni ekki að setja vetrardekkin undir bílinn minn.
Ákvað að skella mér í bíó í gærkvöldi eftir að hafa verið ofurdugleg að læra allan daginn. Myndin hét The Ghost Ship, hún var nú ekkert geðveik þessi mynd, dáldið mikið svona óraunveruleg. Ég mæli allavega ekki með henni, en það var samt fínt að lyfta sér aðeins upp frá lærdómnum og skreppa í bíó.

laugardagur, desember 14, 2002

Björk og Þröstur eru búin í prófum, vil ég óska þeim til hamingju með það. Þykir mér nú gott afrek hjá Þresti að hafa farið í 4 próf á 4 dögum, það er nú meira en að segja það.
Ef ég hefði lent í því þá væri ég örugglega dead núna sökum þreytu og mikils lærdóms og væri líklega bara í rúminu yfir jólin. En hann var nú bara nokkuð hress áðan en talsvert mikið þreyttur, enda ekki við öðru að búast.
Fór á tónleika með Sigurrós í gærkvöldi í Háskólabíó og ég er ekki frá því að þetta hafi verið einu bestu tónleikar sem ég hef farið á. Þessi hljómsveit er náttulega bara algjör snilld, þeir spiluðu lög af öllum þremur diskunum. Þetta var í fyrsta sinn sem ég fór á tónleika með þeim, allir hljómsveitarmeðlimarnir stóðu sig þvílíkt vel, mér fannst trommarinn koma mér mest á óvart, mig verkjaði stundum í hendurnar hans vegna því hann spilaði svo rosalega hratt og fast ( en þvílík útrás sem mar fær með því að spila á trommur ).

föstudagur, desember 13, 2002

Talaði líka við Söru í gær, hún kemur heim frá Köben á sunnudaginn, það eru einhverjar voða ráðstafanir í Köben út af ESB fundinum og henni var nánast bannað að fara í bæinn um helgina.
Dagurinn í gær fór nær allur í tiltekt, ég var eiginlega að gera jólahreingerninguna. Þar sem undanfarin ár hef ég verið mjög upptekin seinustu dagana fyrir jól og hef því varla haft tíma til að þrífa ákvað ég að taka forskot á sæluna.
Eftir tiltektina skrapp ég með litla bróður mínum í bíó á einhverja jólamynd með Tim Allen, hún var allt í lagi en söguþráðurinn hefði mátt vera aðeins betri.
Fór svo í heimsókn til Sæunnar og Sóleyjar Margrétar í gærkvöldi. Allt voða gott að frétta af þeim mæðgum, brosið á Sóleyju hvarf ekki á meðan ég var þarna og hún hlóg og hlóg þegar ég var að hnoðast með hana.

fimmtudagur, desember 12, 2002

Jæja...mesta prófatörnin búin, mér hefur gengið bara svona allt í lagi í þessu en mar getur náttulega ekki sagt neitt fyrr en einkunnirnar koma. Seinustu prófin eru svo hjá mér 20.des, vinnu- og skipulagssálfræði og bóklegt í Upplýsingatækni 2.
Í dag er ég að hugsa um að taka aðeins til, eiginlega bara jólahreingerningin. Verð svo líka að fara að tékka á einhverjum jólagjöfum.

laugardagur, desember 07, 2002

Vá, það var ekkert smá dramatískt kvöld hjá mér í gærkvöldi. Byrjaði á því að horfa á ER síðan á miðvikudaginn og ég man varla eftir jafn dramatískum þætti en þar sem ER er eini sjónvarpsþátturinn um þessar mundir sem ég læt taka upp fyrir mig ef ég missi af honum þá fannst mér þátturinn að sjálfsögðu góður.
Ég leigði mér líka spólu sem heitir John Q með Densil Whasington, mér fannst hún bara ágæt þessi mynd og sérstaklega þar sem ég var enn í drama feeling síðan fyrr um kvöldið þá lifði ég mig svo alveg inní myndina.

Klukkan er rúmlega 9 á laugardagsmorgni og ég hélt að enginn í götunni væri kominn á fætur nema ég, en það eru einhverjir krakkar búnir að labba fram hjá húsinu með einhver læti, fólkið á móti búið að keyra í burtu og ég heyri í einhverju fólki hérna úti. Hvað er eiginlega að gerast???? Ég sem vildi svoleiðis óska þess að ég væri sofandi ZZZzzzzzzz

fimmtudagur, desember 05, 2002

Jæja, prófið í Rekstrarstjórnun 2 í fyrramálið. Ég verð nú bara að viðurkenna það að ég verð mjög svo fegin þegar þessu námskeiði lýkur. Búin að vera 5 stór hópverkefni yfir önnina og hafa þau sko tekið tíma.

Eitt verkefnið var reyndar bara mjög skemmtilegt (mér fannst það allavega en veit ekki alveg með strákana), verkefnið var að hanna brúðkaup frá A-Ö svona eins og Jennifer Lopez gerði í The Wedding Planner. Þetta áttum við að vinna í forriti sem heitir Project og er hluti af Office pakkanum og kallast þetta verkefnastjórnun.
Ég og Siggi, strákur sem var með mér í hóp, vorum uppi í Odda að vinna þetta verkefni og fólkið sem var í kringum okkur hélt örugglega svona til að byrja með að við værum að fara að gifta okkur :)
Við þurftum að velja, prest, kirkju, stað fyrir veisluna, veislustjóra og bara allt sem viðkemur brúðkaupi og að finna hvað allt kostaði.
Það kom mér mjög svo á óvart hvað þetta er allt alveg rosalega dýrt, ekkert grín að gifta sig.

þriðjudagur, desember 03, 2002

Ég er nú meiri aumingjinn, er á bókhlöðunni en að spá í að fara heim. Nenni bara ekki að vera hérna lengur.

mánudagur, desember 02, 2002

Vei, Sæunn var að skrifa í gestabókina og minna mig á útskriftina hjá henni 20.des. Það er einmitt dagurinn sem ég fer í 2 próf(já ég fer í 2 próf þann dag). En það eru þó seinustu prófin, það verður sko djammað það kvöld Sæunn, ekki spurning :) Ég get varla beðið eftir þeim degi.
Þröstur á afmæli í dag og vil ég óska honum til hamingju með daginn. Ég gaf honum bara smá gjöf, Nikepeysu, því ég ætla að gefa honum afmælis- og jólagjöf saman. Ég er búin að kaupa aðalgjöfina en hann fær hana ekki fyrr en á aðfangadag, þið sem vitið hvað það er usssssss.

sunnudagur, desember 01, 2002

23 dagar til jóla og 20 dagar þar til ég á afmæli :)
Vonandi verður dagurinn í dag afkastameiri en gærdagurinn. Mér tókst bara engan vegin að einbeita mér að lærdómnum í gær, en ég verð því að vera rosa dugleg í dag. Eitt er nú jákvætt við daginn og það er það að ég er komin á fætur en klukkan einungis 10 á sunnudagsmorgni.