þriðjudagur, október 28, 2003
Spurning um að skreppa aðeins í sund og synda svona eins og 1000m eða svo. Engin badmintonæfing hjá mér í dag þannig ég verð að gera eitthvað annað. Líka fínt að taka smá pásu í lestrinum.
Fyrsti snjórinn kom í dag, það er ansi langt síðan Oddný sagði mér að fyrsti snjórinn hefði komið á Akureyri.
Ég fékk e-mail frá Rögnu í gær þar sem var mynd af henni og Kirsten Dunst (Spiderman) hún hitti hana víst einhvers staðar í USA. Verður gaman að heyra meiri detail frá Rögnu hvernig þetta átti sér stað, hvort hún hefði talað eitthvað við hana eða hvað.

sunnudagur, október 26, 2003
Sara á afmæli í dag, TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN Sara mín. Hún Sara er að njóta dagsins í Miami, rosa gaman hjá henni. Hún og Ragna töpuðu í undanúrslium í tvíliða á móti japönskum gellum, þessir asíubúar eru svo góðir í badminton.
Æfing aftur í morgun frá 9-11, við skulum segja að mér hafi fundist hún í erfiðari kantinum. Var næstum sprungin eftir klukkutíma. Var einliðaleiksæfing í 20 mín - en það er ekkert smá gaman þegar æfingarnar eru erfiðar og maður þarf að taka á öllu sem maður hefur og meira en það.
Ég komst því miður ekki á seinni æfinguna í dag þar sem ég hitti Siggu, Birgittu og Ingunni og við vorum að gera verkefni í Reikningshaldi 4.
Ég komst því miður ekki á seinni æfinguna í dag þar sem ég hitti Siggu, Birgittu og Ingunni og við vorum að gera verkefni í Reikningshaldi 4.
laugardagur, október 25, 2003
Matarboðið heppnaðist bara vel, ég bauð stelpunum upp á heimatilbúna pizzu. Ég verð samt eiginlega að viðurkenna það að Þröstur átti aðalheiðurinn að pizzunum en ég aðstoðaði hann. Það er alltaf rosa gaman hjá okkur stelpunum þegar við hittumst, yfirleitt er bakkus við höndina en í gærkvöldi var eitthvað lítið um hann. Horfðum á Idolið, þær eru allar mun meira inni í því en ég þar sem ég hef ekki séð alla þættina. En fínn þáttur engu að síður.
Það eru æfingabúðir hjá landsliðinu um helgina, búin 1 æfing af 4 og vá hvað ég er þreytt.
Það er þýskur þjálfari hérna sem sér um æfingarnar. Ég á sko ekki eftir að geta hreyft á mér líkamann í kvöld þannig planið hjá mér verður að gera EKKI NEITT nema hvíla mig. Hlakka nú bara eiginlega til að eiga eitt svona lazykvöld þar sem ég hef verið busy næstum öll kvöldin síðustu daga.

fimmtudagur, október 23, 2003
Annað kvöld verð ég með matarboð fyrir stelpurnar sem eru með mér í skólanum, ég er ekki alveg búin að ákveða hvað ég ætla að hafa en með nokkrar hugmyndir.
Vinna og skóli hjá mér í dag. Fór til Unnar í gærkvöldi þar sem við stelpurnar kjöftuðum alveg fullt. Alltaf gaman að hittast og spjalla.
miðvikudagur, október 22, 2003
Nýja íbúð Hrundar og Ásgeirs er bara rosalega flott, fór í saumó til Hrundar í gærkvöldi. Þau búa í Hafnarfirði í 3.herb íbúð í Setberginu. Ég hlakka ekkert smá til þegar ég get farið að leita að minni fyrstu íbúð en það verður því miður ekki alveg strax. Verð nú að klára skólann og vinna eitthvað svo ég geti nú átt einhvern pening til að geta borgað íbúðina.
þriðjudagur, október 21, 2003
Búin að vera á hlöðunni að læra í allan dag og er bara nokkuð sátt við árangurinn. Verð að fara að spýta í lófana, styttist í prófin og þar sem ég er eiginlega á erfiðustu önninni minni hingað til þá er ég að verða frekar stressuð.
Er svo að fara til Hrundar í kvöld, hún var að flytja í nýja íbúð á laugardaginn og hlakka ég rosa mikið til að sjá hvernig allt er.
Sara hringdi í mig frá Köben í gær, brjálað að gera hjá henni. Kom heim frá Slóvaníu í gær og svo lá leiðin til Miami snemma í morgun. Hún náði rétt svo að henda í þvottavélina en ekki að þurrka þvottinn :) Hún kemur svo til Íslands 9.nóv og verður í rúmlega viku, ég get varla beðið eftir því og Oddný ætlar að koma til Reykjavíkur. Þannig það verður gaman þegar við vinkonurnar getum hist allar (frekar langt síðan það var)

sunnudagur, október 19, 2003
Sara og Ragna töpuðu í úrslitum á opnu móti í Slóveníu. Spiluðu við einhverja Rússa í úrslitum, þessir Rússar eru nú alveg helv góðir í badminton. Ekkert smá gott hjá stelpunum, þær fá einhvern slatta af stigum fyrir þetta og hækka á heimslistanum.
Annars er helgin búin að vera fín, fór út að borða í gær og í leikhús á Match með íslenska dansflokknum. Flott sýning og mæli ég alveg með henni. Eftir það var haldið á Sólon og svo á gamla Skuggabarinn þar sem Hildirhans voru að spila. Þetta var alveg þvílíkt fjör ég held að allir hafi skemmt sér vel, sungið, klappað og dansað alveg á fullu. Þetta var alveg frábært kvöld og ekkert smá fínt að rölta bara út í bíl og keyra heim. Bölvuð vitleysa að maður þurfi alltaf að drekka til að skemmta sér
Ég verð að segja að ég fór í fyrsta skipti í strætó í MJÖG langan tíma á föstudaignn. Bíllinn minn var á verkstæði þannig ég varð að taka strætó í skólann. Tók Sjöuna úr Fossvoginum og upp í Háskóla, það gekk bara alveg glimrandi vel og var bara rosa fínt. Var með geislaspilara með mér og hlustaði á Sigurrós alla leiðina. Ég komst semsagt í skólann á réttum tíma.
fimmtudagur, október 16, 2003
Það verður sko alveg meira en nóg að gera hjá mér um helgina. Vinnudjamm, verið að kveðja eina sem var að hætta eða hún hætti reyndar í sumar en það var svo mikið að gera þá að ekki var hægt að kveðja hana þá. Bekkurinn minn í skólanum ætlar líka að hittast og fara saman út að borða og svo er vísindaferð þar sem partur af saumaklúbbnum mínum verður. Þannig það er mikið hægt að gera.
Ætla að byrja á vinnudjamminum svo liggur leiðin að hitta bekkinn og svo ætla ég að reyna að hitta saumaklúbbinn seinna um kvöldið. Ótrúlegt þegar allt er að gerast sama kvöldið.
Ætla að byrja á vinnudjamminum svo liggur leiðin að hitta bekkinn og svo ætla ég að reyna að hitta saumaklúbbinn seinna um kvöldið. Ótrúlegt þegar allt er að gerast sama kvöldið.
miðvikudagur, október 15, 2003
Þá er fyrsta prófið á þessari önn búið, ég er nú ekki alveg nógu sátt við það hvernig mér gekk. Mér fannst ég vera að giska á of mikið. En það er lítið við því að gera núna nema bara spýta í lófana og fara að læra af einhverju viti.
mánudagur, október 13, 2003
Styttist í prófið sem er á miðvikudaginn í Endurskoðun. Mér gengur bara svona þokkalega að læra, ekkert meira en það samt. Er að byrja á 7.kafla af 10 Skemmtilegt kvöld framundan hjá mér, sitja við skrifborðið og læra með kertaljós (ég verð nú að hafa þetta svolítið cosy svo ég morkni ekki bara).
sunnudagur, október 12, 2003
Bauð vinkonunum heim í gærkvöldi í smá teiti. Rosa fínt, sátum og spjölluðum til ca 2. Ekkert varð af bæjarferð í þetta skiptið hjá neinni. Ég hafði alveg löglega afsökun fyrir bæjarferð þar sem það er próf hjá mér á miðvikudaginn OG ég þarf að skila verkefni á morgun (sem ég var eiginlega búin að gleyma). Nú er bara málið að bretta upp ermarnar og fara að gera eitthvað að viti og nýta daginn til hins ítrasta. Ég sem ætlaði líka í ræktina í dag en sé reyndar ekki alveg fram á að ná því :(
laugardagur, október 11, 2003
Ég verð eiginlega að segja að ég er ekkert smá ánægð með sjálfan mig, komið hádegi á laugardegi og ég er búin að fara á tveggja tíma badmintonæfingu og er að byrja að læra. Vaknaði reyndar kl. 8 í morgun en sef bara aðeins lengur á morgun.
Ég er ekki alveg nógu sátt við þessa Idol sjónvarpsþætti. Þeir eru alveg rosalega langdregnir og svo oft verið að sýna myndir af krökkunum aftur og aftur og aftur. Ég held að besta ráðið sé að taka það upp og horfa á það eftir á og geta þá hraðspólað yfir þetta bull sem er oft. Þeir gætu örugglega stytt þáttinn um svona helming.
föstudagur, október 10, 2003
Próftaflan var birt í dag, ég byrja 5.des og er búin 20. Fer í próf 5. 10. 12. 18. og 20.
Sæmileg tafla svosem, ég er samt alltaf búin svo seint í þessum prófum en það þýðir víst lítið að svekkja sig á því.
Sæmileg tafla svosem, ég er samt alltaf búin svo seint í þessum prófum en það þýðir víst lítið að svekkja sig á því.
fimmtudagur, október 09, 2003
Ég er nú aldeilis búin að afreka mikið í dag, vinna frá 8:30-13:00 og svo skóli frá 13:15-16:00. Ég meika nú varla að fara að læra núna í þennan stutta tíma sem ég hef áður en badmintonæfingin byrjar.
Ekkert mót þessa helgi en æfing á laugard.morgun í staðin. Ég ætla að reyna að nota helgina vel til að læra enda að fara í próf í næstu viku.
Ekkert mót þessa helgi en æfing á laugard.morgun í staðin. Ég ætla að reyna að nota helgina vel til að læra enda að fara í próf í næstu viku.
laugardagur, október 04, 2003
Þessi vika hefur verið frekar busy hjá mér, það eina sem ég hef eiginlega gert er að læra, æfa og vinna. Mikið að gera hjá mér bæði í vinnunni og skólanum og er ég að reyna að púsla tímanum saman svo ég geti gert hvort tveggja.
Er búin að vera að keppa í dag og í gær í badminton og gekk svona upp og ofan, stundum vel og stundum ekki nógu vel og svo eru 2 leikir eftir í fyrramálið. Semsagt 8 badmintonleikir þessa helgina, það er nú alveg ágætlega mikið og finn ég líka aðeins fyrir þreytu núna og á hún líklega eftir að verða meiri á morgun.
Í kvöld er ég að fara í afmæli til Petrínu, það verður rosa fjör eins og alltaf þegar við vinkonurnar hittumst :)