fimmtudagur, september 21, 2006

Nú er aðeins farið að reyna meira á það að vera heimavinnandi húsmóðir. Ég verð eiginlega að segja það að það er bara alveg ágætt og búið að vera svo mikið að gera hja mér að ég næ bara varla að taka til og þvo þvott hehe.

Við mæðginin erum byrjuð í leikfimi saman. Það er þannig að fyrst byrja mömmurnar að hita upp og gera æfingar og börnin eru stillt á meðan og svo þegar þolinmæðin fer að minnka hjá krökkunum að þá fa þau að vera með og við gerum æfingar með börnin. Mér finnst þetta mjög sniðugt t.d. þegar við gerum magaæfingar þá æfa börnin sig að sitja ofan á maganum og svo eru lika gerðar æfingar fyrir börnin til að æfa hreyfiþroska þeirra.
Þannig drengurinn byrjaður í íþróttum aðeins 6 vikna gamall hehe..maður verður að fara að kynna honum fyrir hinum ýmsu íþróttagreinum.
Ég mæli allavega alveg með þessu fyrir nýbakaðar mæður og verð ég að viðurkenna að ég fékk alveg harðsperrur í lærin og hendurnar eftir fyrsta tímann og var bara mjög þreytt sem segir mér það að formið er alveg hrikalegt o.þ.a.l. nauðsynlegt að byrja bara rólega áður en maður fer á fullt :)

Planið er að skíra litla snúðinn okkar á laugardaginn heima hjá mömmu og pabba. Við ætlum bara að hafa litla skírn með nánustu ættingjunum og mér heyrist fólk vera orðið ansi spennt að vita hvað hann á að heita.

En jæja ég held ég verði nú að fara að vekja drenginn bara hann er búinn að sofa næstum í allan dag og mig sem langar svo með hann út að labba í góða veðrinu en spurning hvort hann vilji fara aftur að sofa.

sunnudagur, september 10, 2006

Þá er litli snúðurinn orðinn meira en 1 mánaða eða akkúrat 5 vikna í dag. Tíminn líður alveg svakalega hratt mér finnst reyndar eins og hann hafi verið hluti af lífi okkar miklu lengur.

Ég meirað segja skellti mér út á föstudagskvöldinu og get því talað um eitthvað annað en bara móðurhlutverkið hehe... Það var haustfagnaður í vinnunni og ákvað ég að kíkja þangað. Við byrjuðum á því að hittast á Vegamótum og borða saman og fannst mér algjört æði að komast á Vegamót þar sem það er eiginlega uppáhalds veitingastaðurinn minn það er svo mikið af góðum réttum þar. Eftir matinn fór ég heim og þurfti að gefa litla prinsinum mínum að borða. Fyrst ég var nú líka búin að taka mig til og mála mig og svona að þá varð ég nú líka að kíkja í sjálft partýið sem var haldið á Nordica. Það var ekkert smá gaman að hitta alla og svo voru hljómsveitirnar hreint ekki slæmar. Ég missti því miður af Jeff Who mig langaði svo að sjá þá en ég sá Papana sem komu á eftir þeim og þeir voru mjög skemmtilegir. Ég verð nú samt að viðurkenna það að ég var ansi þreytt í gær þó svo að ég hafi nú ekki verið lengi kom heim rúmlega 12 þannig ég veit ekki hvernig ég hefði verið ef ég hefði verið lengur og ég tala nú ekki um ef ég hefði fengið mér eitthvað að drekka :) Ég þarf líklega að vinna upp þol í þessum bransa hehe