föstudagur, ágúst 27, 2004

Þá eru prófin loksins búin, ég þori eiginlega ekkert að segja hvernig mér gekk en krosslegg fingur og vona bara hið besta. Ég átti alveg frábæran dag í gær, hitti Freyju og Guðnýju á Vegamótum í hádeginu og sátum við þar í a.m.k. 2 klukkutíma. Eftir það lág leiðin í Nordica Spa, ég og mamma ákvaðum að skella okkur í smá dekur saman í tilefni próflokanna. Fórum í nudd, gufu, heitu pottana ég fór aðeins í ræktina á undan og vá þetta var algjör paradís bara, við komum alveg endurnærðar út. Eftir allt þetta dekur fór ég í leikhús á Romeo og Juliu með Sæunni og Unni Eir og það var að sjálfsögðu algjört æði, ég var að sjá þetta í 2.sinn. Ég held þetta sé eitt af mínum uppáhalds leikritum, án gríns ef ÞÚ ert ekki búin(n) að sjá þetta þá myndi ég drífa mig strax því þetta er eitthvað sem þú vilt ekki missa af.

Annars eru nokkrir vinir mínir fluttir af landi brott þannig ég gæti trúað að þetta gæti orðið skrýtinn vetur. Regína, Bjössi, Björk, Hlynur, Davíð og Aðalheiður eru öll flutt til Danmerkur, ég held ég haldi bara mínu striki og fari til Köben á hverju ári því það er alltaf nóg af fólki til að heimsækja.

miðvikudagur, ágúst 18, 2004

Lærdómurinn gengur ágætlega, núna er það bara harkan sex. Ég reyni að læra eins mikið og ég get og geri eiginlega ekkert annað. Er bara hérna ein með sjálfum mér að hugsa um reikningshald allan liðlangan daginn og bara þar til ég fer að sofa :) nei kannski ekki alveg, maður má nú ekki alveg ofgera sér.

Á þriðjudaginn kl. 17:30 lýkur prófum hjá mér a.m.k. í bili og það verður eflaust ljúft að labba út úr síðasta prófinu í Háskóla Íslands (hehe...eins gott að ég falli ekki, myndi ekki meika það)

Hlynur, Björk, Regína og Bjössi eru öll að flytja til Danmerkur á næstu dögum, verður súrt að missa þau öll en maður verður bara að skella sér út og heimsækja þau. Ef ég skoða ferðir mínar til Kaupmannahafnar síðustu ár þá held ég að það sé eiginlega bara alveg öruggt að það verði ekki langt þar til ég mæti í heimsókn. Reyndar búin að fara einu sinni á þessu ári til Köben en aldrei að vita nema maður skelli sér aftur eða bara á næsta ári. Alltaf svo nice í Danaveldinu, svo fínar búðir til að versla í og margir til að heimsækja :)

miðvikudagur, ágúst 11, 2004

Ég held ég muni ekki eftir öðru eins hérna á Íslandi, ég skrapp í sund í hádeginu og vá þetta var alveg eins og að vera á sólarströnd ef ekki betra bara. Ekki oft sem maður þarf að hoppa ofan í sundlaugina til að kæla sig, væri nice ef veðrið væri alltaf svona. Þetta er alveg magnað
Ég verð nú bara að viðurkenna það að Pink tónleikarnir voru bara nokkuð góðir og skemmtum við mamma okkur gríðar vel. Hún er svo ótrúleg hún Pink, svo skemmtilegur karakter og kom mjög vel fyrir. Þau hefðu samt mátt taka a.m.k. eitt aukalag sem þau gerðu ekki en svosem allt í lagi. Ég hitti frænku mína á tónleikunum sem gaf mér 2 miða í eftirpartý sem haldið var á Felix og var ég alveg við það að fara en þá kom skynsami púkinn upp í mér og messaði yfir mér að það væri ekki sniðugt að fara út á djammið í miðjum próflestri og á þriðjudagskvöldi, dem. Hefði samt verið gaman að sjá hana svona face to face.

mánudagur, ágúst 02, 2004

Jæja, Verslunarmannahelgin að klárast í dag, vá hvað það er langt í næsta frídag 24.desember. Það eru ansi mörg ár síðan ég hef drukkið jafn fáa bjóra um verslunarmannahelgina eins og í ár og sofið jafn mikið og lært heheh...
Samt búin að vera fín helgi þó svo að bakkus hafi verið í minni kantinum. Á föstudaginn átti Sæunn afmæli og enn og aftur til lukku með daginn, hún bauð í smá afmælisboð á föstudagskvöld og var það rosa fínt en ég lúðinn fór snemma heim til að geta vaknað snemma á laugardaginn og haldið áfram að vinna í ritgerðinni minni sem ég og gerði.
Á laugardaginn fórum við Bergmann upp í bústað til mömmu og pabba þar sem við fengum lambalæri og góðan mat, röltum á brennu, kjöftuðum við hitt sumarbústaðarfólkið.
Svo voru bara rólegheit í gærkvöldi.
Ritgerðin hefur bara gengið ágætlega, ég er búin að glósa alveg slatta mikið en svo er bara að taka þetta saman og reyna að fá einhverja mynd á þetta.