miðvikudagur, ágúst 16, 2006

Þá erum við búin að útbúa bloggsíðu fyrir prinsinn ekki seinna vænna orðinn rúmlega vikugamall :)

Slóðin er www.barnanet.is/bergmann og sendið póst á mig til að fá lykilorðið á unnurylfa@gmail.com og ekki hika við að senda

föstudagur, ágúst 11, 2006

Held það sé kominn tími á smá fréttir þar sem litli prinsinn okkar nennti ekki að hanga lengur í maganum og ákvað bara að láta sjá sig.

06.08.06 var semsagt dagurinn sem hann lét sjá sig rúmlega 4 um daginn. Ég get nú ekki annað sagt en að þetta hafi bara gengið allt mjög vel þrátt fyrir að það hafi fattast á síðustu stundu að hann hafi verið sitjandi. Þá voru góð ráð dýr hvort ég ætti að fæða hann eða fara í keisara. Það var eiginlega orðið of seint að fara í keisara þannig málið var bara að koma honum sitjandi í heiminn og það gekk og bara hreint ekkert illa. Hann var 13 merkur og 49 cm og rosalega sætur :)

Fyrstu dagarnir hafa bara farið í að hugsa um litla prinsinn okkar, kynnast honum, gefa honum að drekka og bara stjana í kringum hann.

Það hafa margir komið í heimsókn og ég held hann bræði bara alla sem sjá hann enda enginn smá sjarmör hér á ferð.

Takk kærlega fyrir allar kveðjurnar hvort sem þær hafa verið í smsi, e-maili, hérna á síðunni, síma eða bara face to face.

Við erum rosalega stoltir foreldrar og ég held ég verði að segja að þetta er örugglega það magnaðasta sem við höfum upplifað að koma svona litlu kríli í heiminn og eitt af þessum stundum í lífinu sem maður mun aldrei gleyma.