mánudagur, september 29, 2003

Oddný var í Reykjavík um helgina ég hitti hana því miður rosa lítið sökum utanlandsferðar. Fórum á kaffihús í hádeginu á sunnudaginn, ég, Oddný, Eva, Maggi, Dave og Aðalheiður. Meirihlutinn af hópnum hafði verið á einhverju skralli á laugard.kvöldinu þannig fólk var svona misþreytt. En það var ekkert smá gaman að hitta Oddnýju eftir ca mánaða aðskilnað. Ég ætla pottþétt að fara norður og heimsækja hana einhvern tíman í vetur þegar tækifæri gefst.

sunnudagur, september 28, 2003

Kom heim frá Spáni í nótt eftir fína ferð. Veðrið var reyndar ekkert alltaf til að hrópa húrra fyrir var t.d. rigning í Barcelona í gær. Fórum í Waterworld á fimmtudaginn og kom þá krakkinn í manni fram. Við skemmtum okkur öll mjög vel þar og voru nokkrar fínar rennibrautir, fórum svo í GoKart eftir það.
Eyddum laugardeginum í Barcelona þar sem rölt var um og kíkt aðeins í búðir.
Nú er það bara hversdagsleikinn sem tekur við strax á morgun og er þá eins gott að ég fari að taka mig verulega á í lærdómnum eftir þetta viku frí.

þriðjudagur, september 23, 2003

Eg er hérna á Spáni í fínu flippi. Er ca 1 klst fyrir utan Barcelona. Skruppum til Barcelona í gaer og kíktum adeins í búdir.
Amma atti afmaeli i gaer og heldum vid upp a thad en a medan vid vorum uti ad borda kom eitt mesta thrumuvedur og eldingar sem eg hef a minni aevi sed.
Rafmagnid datt nokkrum sinnum ut a veitingastadnum og svo thegar vid komumst loksins i gotuna thar sem vid búum thá var búid ad loka henni og bara rosa flód thannig vid komumst ekki heim. Hafdi flaett inn i anddyrid a hótelum, borum og á nokkrum stodum i gotunni.
Thetta var tvilikt aevintýri og rosa gaman. Thad haetti ad rigna um nóttina og hefur verid fínt vedur sídan.
Ástaedan fyrir tví af hverju ég er á netkaffi núna er vegna thess ad ég á ad skila verkefni í skólanum á morgun og vonandi tekst tad, kláradi thad í morgun.

Eins og er thá er ég í litlum bae sem heitir Tossa del Mar sem er nordan vid Barcelona. Thetta er rosa nice baer vid strondina.

Allavega, bestu kvedjur hérna úr hitanum. Ég aetla út og kíkja í búdir eda eitthvad.

laugardagur, september 20, 2003

Jæja þá liggur leiðin bara til Barcelona í dag, vélin fer kl. 5 í dag. Gaman að fara í sólina í svona leiðinlegu veðri, rigning og rok hér.
Ég óska mér bara góðrar ferðar, ble

þriðjudagur, september 16, 2003

Það styttist óðum í Barcelonaferðina, ég er bara farin að hlakka til en samt með smá móral út af skólanum því það er svo mikið að gera.
Ég á að skila 2 heimaverkefnum í næstu viku á meðan ég verð úti en ætla að reyna að klára a.m.k. annað þeirra áður en ég fer.
Þó ég hafi verið í Barcelona fyrir 3 mánuðum síðan þá held ég samt að þetta eigi eftir að vera mjög gaman, ég er búin að ákveða nokkra staði sem ég ætla að skoða og veit alveg í hvaða búðir ég ætla pottþétt í.

sunnudagur, september 14, 2003

Búin að vera ágætis helgi hjá mér, amma hélt upp á sjötugsafmælið sitt á föstudaginn og var ég í þjónustuhlutverkinu þar.
Svo var æfing hjá mér kl. 9 á laugardagsmorgun takk fyrir, rosa próf, sprettir og alls konar styrkleikapróf. Ég var frekar þreytt eftir þetta, ætli maður sé ekki farinn að eldast eitthvað,argg.
Tók því rólega í gærkvöldi, fór í bíó með Katrínu og kíktum aðeins í bæinn.
Í kvöld er ég svo með matarboð.

þriðjudagur, september 09, 2003

Skólinn byrjaði í síðustu viku og er ég svona að reyna að komast af stað og læra eitthvað en það gengur nú vægast sagt hægt. En stefnan er tekin á það að læra í dag, spurning hvort það takist.
Var með flensu alla helgina en er svona að komast yfir það
Ég skrapp til Svíþjóðar síðustu vikuna í ágúst að keppa í badminton, þetta var rosa skemmtileg ferð og gekk okkur bara vel. Unnum Holland og Tyrkland en rétt töpuðum fyrir Sviss 3-4 og Finnlandi 3-4.