þriðjudagur, desember 30, 2003

Enginn smá snjór í Reykjavíkinni núna, dagurinn í gær var nú alveg ótrúlegur. Ég mætti í vinnuna hálf 9 og komst alveg léttilega á þeim tíma en svo kom bara þessi þvílíki skafrenningur og snjór og um hádegið var allt gjörsamlega ófært. Greyið mamma komst ekki út úr húsi og Þröstur var á fullu að hjálpa fólki að komast út úr sinni götu í gær. Ég fékk far með einum úr vinnunni og ég hef aldrei séð annað eins, þegar við mættum að bílnum var hann bara gjörsamlega einn snjóskafl, sást nánast ekkert í hann. Sem betur fer fengum við lánaða skóflu og gátum losað bílinn að lokum en okkur var nú orðið ansi kalt og vorum orðin frekar blaut. En annars er nú bara ágæt stemning í svona veðri eða mér finnst það frekar gaman :)

föstudagur, desember 26, 2003

Þá er aðfangadagur liðinn, dagurinn sem maður var búinn að bíða svo lengi eftir. En ég er búin að hafa það alveg svakalega gott, loksins búin að ná upp svefninum eftir prófin og bara búin að borða, lesa, pússla, horfa á kassann, fara í jólaboð og fleira. Þetta er tími sem maður á bara að slappa af og hafa það huggó.
Ég fékk ekkert smá mikið í jólagjöf og flottar gjafir, ég var svo ánægð með allt.
Nú er maður kominn á þann aldur að fara að fá eitthvað í búið, við Þröstur fengum eitthvað t.d. ristavél, hann fékk kaffivél, hvítlaukspressu og pizzahníf.
En hafið það alveg rosalega gott yfir hátíðirnar folks, ég er að hugsa um að fara að lesa í eitthvað af bókunum sem ég fékk (fékk 4 bækur), mér finnst ekki vera jól nema ég fái bækur.

þriðjudagur, desember 23, 2003

Jólin eru óðum að nálgast, ég er ekki alveg búin að gera allt fyrir jólin á 3 gjafir eftir og svo á ég eftir að pakka öllu inn, alveg nóg að gera.
Keypti fyrstu jólagjöfina í gær og kaupi líklega þá síðustu í dag, mig langar svo að vera búin að öllu fyrir morgundaginn svo ég geti nú bara sofið almennilega út og ekki haft áhyggjur af neinu fyrr en eftir hádegi.

laugardagur, desember 20, 2003

Þá eru þessi próf loksins búin og vá hvað ég er fegin. Gekk ok í dag í fjármun- og félagarétti. Svo er það bara út að borða með saumaklúbbnum í kvöld og á eitthvað skrall

þriðjudagur, desember 16, 2003

Ég er að hugsa um að slá þessu bara upp í kæruleysi og fara bara að sofa ZZZZzzzzzz (hehe...allt til að sleppa við að læra)
Fyndið hvað maður getur látið hugann reika um eitthvað allt annað en það sem maður á að vera að læra og allt í einu eru margar bls búnar og ekkert komið inn í hausinn um hvað þetta var. Allavega þá hef ég oft staðið mig að þessu í dag og síðustu daga, ég er t.d. búin að vera að hugsa um hvað ég eigi að gefa í jólagjöf, ég er búin að ákveða 2 gjafir af sirka 11. Ég fer að vinna á mánudag og þriðjudag þannig ég hef ekki mikinn tíma til þess að kaupa þessar blessuðu gjafir. Það er svo margt sem þarf að gera, taka til, kaupa jólagjafir, skrifa jólakort og ég veit ekki hvað meir.
Því miður þá sé ég varla fram á að ná að gera jólakort þessi jólin en það er samt ennþá á planinu þannig...það verður að koma í ljós hvort það takist.

mánudagur, desember 15, 2003

Loksins búið að ná Saddam, verður gaman að sjá hvort ástandið batni eitthvað í Írak við það og hvort Bush auki eitthvað vinsældir sínar við þetta.

Ég er að byrja að læra fyrir endurskoðunarprófið sem er á fimmtudaginn. Búin að vera 2 skyndipróf í því fagi úr öllu námsefninu nema síðasta kaflanum. Ekkert smá þægilegt að hafa skyndipróf svo maður sé nú ekki að frumlesa næstum allt námsefnið fyrir próf eins og ég lendi svo rosalega oft í. Þetta eru samt 23.kaflar takk fyrir þannig..það er svosem alveg meira en nóg sem ég þarf að læra.

sunnudagur, desember 14, 2003

Ég fór á jólahlaðborð í gærkvöldi á Iðnó, pabbi hans Þrastar átti afmæli og fór öll familían því saman út að borða. Þetta var rosa gott og svo var Carmen (ópera) sýnd eftir aðalréttinn og svo var smá pása á meðan eftirrétturinn var borinn fram og svo kláraðist óperan eftir hann. Þetta var mjög flott, ekki oft sem maður hefur farið á óperu en þessi lofaði mjög góðu.

laugardagur, desember 13, 2003

Jæja, bara 2 próf eftir næsta fimmtudag og svo laugardag. Ég get eiginlega ekki meir, vildi óska að þetta hefði bara klárast í dag.

Tók mér frí í gær frá lærdómnum, við Ingibjörg kíktum aðeins í Smáralindina en vorum frekar andlausar og ekki alveg í jólafeeling. Vorum báðar að koma úr 4 tíma prófi og vorum frekar vannærðar eftir svefnlitla nótt :)

Ég fór líka á badmintonæfingu í gær og var það bara rosa fínt að spila smá og svo fór ég til Hrundar að horfa á Idolið. Gaman að hitta stelpurnar og við höfðum alveg um nóg að tala.

fimmtudagur, desember 11, 2003

Mín mætt á hlöðuna og ætlar svoleiðis að dæla fróðleik inn í hausinn í dag, þýðir sko ekkert annað. Skattskilaprófið á morgun.
Horfði á Nóa Albínóa í gærkvöldi og fannst mér þetta bara nokkuð góð mynd, mæli pottþétt með henni.
Ég er að hugsa um að taka smá break á morgun eftir prófið og skreppa kannski aðeins og kíkja á jólagjafir eða eitthvað.

þriðjudagur, desember 09, 2003

Dagurinn í gær var ekki sá besti lærdómslega séð hjá mér, ákvað því bara að skella mér á badmintonæfingu um kvöldið sem var ekki svo vitlaus hugmynd. Það var ekkert smá gaman þar sem ég hef verið í fríi í 3 vikur þá er alltaf svo gaman að koma aftur. Ég verð samt að viðurkenna það að ég varð nú alveg frekar þreytt og er með smá harðsperrur í dag en það hlýtur að segja mér að ég hafi eitthvað verið að hreyfa þessa vöðva sem ég hef.

mánudagur, desember 08, 2003

Haldi þið að ég sé ekki bara búin að taka til hjá mér í dag, get náttulega ekki lært nema það sé fínt. Ótrúlegt hvað maður finnur sér alltaf eitthvað annað að gera þegar maður á að vera að læra. En eftr tiltekin þá gekk mér bara ágætlega að læra þannig...þetta virkaði. Þegar maður er líka ekki í stuð til að læra þá er alveg eins gott að taka smá pásu og gera eitthvað annað og koma svo ferskur aftur. Jæja best að halda áfram, ég verð að vinna upp tímann sem ég eyddi í tiltektina þannig...ætli ég verði ekki að læra í allt kvöld og kannski frameftir ef ég verð í stuði :)
Það gekk nú frekar brösulega að komast á fætur í morgun en það hafðist, ég er ekki frá því að það er einhver vottur af flensu í mér, arggg....eitthvað sem ég get ekki alveg höndlað núna. Vonandi lagast þetta þegar líður á daginn, hausverkur, hálsbólga og eitthvað bull. En það þýðir víst lítið að kvarta yfir því, ég verð víst að bretta upp ermarnar og fara að læra.
Vá það eru minna en 2 vikur eftir af prófunum, ég get eiginlega ekki beðið eftir því að þau klárist.

laugardagur, desember 06, 2003

Ég ákvað bara að vera heima að læra í dag, nennti ekki að standa í þessu kapphlaupi um að ná í borð á bókhlöðunni. Samt frekar erfitt að vera heima þegar mamma og pabbi eru að baka sörur, hlusta á jólalög og að skreyta argg....helvítis próf.
Ég fór út að hlaupa áðan aðeins til að hressa mig við. Ekkert smá hressandi en formið hefur nú dottið frekar mikið niður enda kannski ekki skrýtið þar sem ég hef ekki gert annað síðustu vikurnar en að sitja á rassinum og læra, eina brennslan sem ég fæ er þegar ég stend upp og fer í pásu til að fá mér að borða.
Jæja....ég verð víst að fara að gera eitthvað af viti

föstudagur, desember 05, 2003

Jæja, fyrsta prófið búið, 4 tímar takk fyrir sem liðu jafn hratt og svona 1 klst normally. Veit eiginlega ekkert hvernig mér gekk en vonandi bara ok, en tíminn hefði nú alveg mátt vera lengri. Mér finnst alltaf jafn ótrúlegt þegar maður er í tímaþröng í 4 tíma prófum. Kostur við þetta próf að það var í tölvu sem er ekkert smá þægilegt.
Ég held ég verði eiginlega að leggja mig aðeins áður en ég byrja aftur að læra fyrir næsta próf, ótrúlega erfitt að læra sama dag og maður er í prófi

miðvikudagur, desember 03, 2003

Úfff...hvað maður getur orðið morkinn eitthvað að vera of lengi á þessari bókhlöðu. Ég mætti 8:15 í morgun, eins gott að ég mætti ekki seinna en það því þá hefði ég ekki fengið neitt borð. Það var alveg gjörsamlega troðið hérna og ekki eitt einasta borð að fá kl. 8:30. Ótrúlegt hvað það er mikil aðsókn, hlýtur að þýða það að aðstaða fyrir nemendur til að læra er engan vegin nógu góð.

Næstum alla mína menntaskólagöngu lærði ég næstum alltaf uppi í Verzló og var aðstaðan þar bara rosa góð. Í 6.bekk máttum við vera þar bara allan sólarhringinn (þurftum reyndar leyfi hjá Valdimari). En það er frekar lummó að byrja svo í viðskiptafræði hér í Hí þar sem það er ömurleg aðstaða fyrir nemendurna, án gríns alveg ömurleg. En það þýðir víst lítið að kvarta yfir því núna þar sem ég á nú ekki mikið eftir.
Ánægjuleg laun
Ég verð eiginlega að segja ykkur frá launaseðlinum mínum þessi mánaðarmótin því ég hef aldrei verið jafn ánægð með launin sem ég hef fengið áður.
Þannig er mál með vexti að ég hef verið að vinna aðeins með skólanum í vetur, frekar lítið samt en var að fá kannski 20 þús kr á mánuði og fór það þá bara eftir því hvað ég vann marga tíma þannig ég bjóst við ca 10 þús kr því ég hætti að vinna um miðjan nóv. En hvað haldi þið, þar sem búið er að sameina bankana þá fékk ég desemberuppbót (13.mánuðinn greiddan) og ég fékk meira að segja líka bónus (sem ALLIR starfsmenn fengu). Þó þetta hafi nú ekki verið há upphæð þá var þetta samt MUN hærra en ég bjóst við þannig....ég held það sé bara búið að bjarga jólunum fyrir mér og ég þarf ekki að hafa áhyggjur af hverri einustu krónu sem ég eyði í jólagjafir :)
Ég er sammála ykkur stelpur í sambandi við commentakerfið, ég ætla strax að fara að vinna í því um leið og prófin eru búin

þriðjudagur, desember 02, 2003

Hann Þröstur minn á afmæli í dag, til lukku með daginn. Við tókum okkur því smá pásu frá bókunum og fórum á Hornið í hádeginu að borða. Rosa fínn matur þar og mæli ég tvímælalaust með þessum stað.
Nú styttist í að prófin byrji hjá mér, eftir aðeins 2 daga eða á föstud. Ég er komin í 7.kafla af 15 og vonandi næ ég að fara almennilega yfir þetta svo ég lendi ekki í einhverju stresskasti þarna á fimmtudagskvöld.

Djö...Sara er að fara á Justin Timberlake tónleika á sunnudaginn í London, vá hvað ég væri til í að fara með henni. Rosalegt ferðalag á henni, hún kom heim frá Guatemala í dag og er að fara til London á morgun að keppa og svo á Justin (var líka að keppa í Guatemala).

mánudagur, desember 01, 2003

Vá hvað ég er innilega sammála Oddnýju með desembermánuð. "nú er runninn upp sá tími sem maður sefur lítið og illa, er alltaf stressaður, finnst maður aldrei ná að klára neitt, étur allt of mikið af nammi og ógeði og hreyfir sig ekki neitt !!" Þetta er akkúrat það sem ég er nú þegar farin að standa sjálfan mig að.
Ég trúi ekki að það séu 3 vikur enn í svona rugl, nammi, óhollur matur, hreyfingarleysi og endalaust stress.