þriðjudagur, maí 30, 2006

Þessi langa helgi hjá mér var alveg frábær. Hófst allt á miðvikudeginum með rosalegri vorgleði í vinnunni. Þar var nóg af öllu mat, drykkjum og tónlist. Þetta minnti mig samt á böllin fyrir svona 10 árum síðan, Páll Óskar var DJ og söng svo nokkur lög, eftir það komu Greifarnir og svo Buff. Það var allaveg mikið dansað og mikið stuð og eiginlega bara fínt að vera ekki að drekka þar sem maður fylgist svo vel með öllu og tekur vel eftir hehe...
Á fimmtudeginum lág leiðin upp í sumarbústað og var það alveg þvílíkt notalegt og afslappelsi. Potturinn var algjört æði og væri ég alveg til í að fara í einn svona bara á hverjum degi, algjör snilld.
Svo var það afmæli hjá Valla bróður Þrastar á laugardaginn sem var mjög gaman og vel heppnað.

Snilld að hafa aftur langa helgi næstu helgi

miðvikudagur, maí 24, 2006

Þá er þessari vinnutörn sem ætlaði engan enda að taka lokið hjá mér, skiluðum frá okkur síðasta mánudag og mér svona eiginlega líður eins og ég hafi verið að skila einhverri lokaritgerð hehe...nei kannski ekki alveg en samt rosalega góð tilfinning að hafa náð að klára þetta og að allt hafi endað vel að lokum :)

Loksins get ég farið að gera eitthvað, hitta fólk og huga að komu erfingjans og reynt að hugsa meira um hann :)

Við stelpurnar fórum að heimsækja Báru og Svavar í gær og hina nýfæddu dóttur þeirra og það var algjört æði. Hún var svo yndisleg og bara eiginlega algjör hnoðri. Það var nánast slegist um að halda á henni.
Eftir þetta fór ég að hugsa um það hvað lífið getur breyst á einum sólarhring eftir að svona lítið kríli kemur í heiminn. Lífið hættir að snúast um mann sjálfan og allt í einu er kominn einhver agnarsmár einstaklingur sem er svo gjörsamlega háður þér og getur ekkert án þín og allt lífið fer að snúast um þetta litla kríli sem er auðvitað alveg æðislegt.

Ég og Magga skelltum okkur á Amokka eftir vinnu í gær og hittum Röggu sem er hérna á landinu í heimsókn. Alltaf gaman að hitta þá sem búa í útlöndum og heyra í þeim :)

Annars er eiginlega bara helgin framundan hjá mér þar sem ég ætla að taka mér frí á föstudaginn og Uppstigningardagur á morgun. Ég get varla beðið eftir að fá að sofa út og slappa af og gera kannski eitthvað heima hjá mér. Planið er að kíkja eitthvað upp í sumarbústað og prófa nýja pottinn sem mamma og pabbi voru að fjárfesta í. Þannig sannkölluð afslöppunar LÖNGhelgi framundan :)

föstudagur, maí 12, 2006

New Yerk var að sjálfsögðu algjört æði. Veðrið var alveg frábært og svona það sem við gerðum var að skoða borgina, Empire State, Frelsisstyttan, tókum svona Turistbus um borgina til að sjá það helsta, Wall Street, Ground Cero, Central Park, skoðuðum í búðir, kaffihús og margt fleira.

Gaman að koma heim í svona gott veður og vonandi bara að sumarið hérna á Íslandi verður gott.

Mig langar að óska Petrínu innilega til hamingju með inngönguna í LHÍ, ekkert smá flott hjá henni og hlakka ég til að sjá hana á morgun.