mánudagur, júní 30, 2003

Grenivíkurferðin gekk bara vel og við stelpurnar skemmtum okkur ekkert smá vel. Við vorum samtals 9 og gistum í heimahúsi hjá Ingunni. Grilluðum um kvöldið og drukkum rauðvín og skelltum okkur á ball í Sjallanum um kvöldið þar sem Í Svörtum fötum voru að spila. Á sunnudaginn skoðuðum við Grenivík og lögðum af stað í bæinn seinni partinn.
afsakið Björk að fikta hérna. Koma núna íslenskir stafir.

laugardagur, júní 28, 2003

Ég hef nú ekkert verið neitt svo dugleg að skrifa enda búið að vera mikið að gera. Var að vinna þvílíkt mikið í þessari viku.
Bróðir minn átti afmæli á miðvikudaginn og varð 11 ára.
Í gærkvöldi var starfsmannadjamm og ekkert smá gaman. Var úti í Heiðmörk þar sem var grill og drykkur, Jagúar spilaði yfir matnum og svo var það uppáhaldshljómsveitin mín sem steig á svið, engin önnur en Sálin. Það var þvílík stemning þegar Sálin var að spila og allir að dansa alveg á fullu. Þeir spiluðu bara eiginlega öll uppáhaldslögin mín :) Þannig...ég var rosa ánægð með kvöldið.
Svo er ég að fara norður á eftir, leiðin liggur til Grenivíkur og verð ég þar í nótt með stelpum sem eru með mér í skólanum.

laugardagur, júní 21, 2003

Haldiði að ég hafi ekki verið að koma af Esjunni, ekkert smá hressandi að skreppa svona upp á Esjuna. Ég verð reyndar að viðurkenna það að ég er frekar þreytt núna og væri alveg til í að leggja mig en þar sem ég er að fara í 2 útskriftaveislur í kvöld verð ég að fara að taka mig til fyrir kvöldið.

miðvikudagur, júní 18, 2003

17. júní heppnaðist bara ágætlega fannst mér nema það rigndi frekar mikið. Ég fór bæði í bæinn um daginn og um kvöldið. Kíkti aðeins með Þresti um daginn og svo með Björk um kvöldið. Fór í bæði skiptin á kaffihús og rölti um. En ég þakka Guði fyrir að hafa tekið regnhlífina mína með a.m.k. um kvöldið því annars lægi ég eflaust veik hérna heima. Fylkir er að spila á eftir við Þrótt, ég vona að sjálfsögðu að mínir menn vinna. ÁFRAM FYLKIR

laugardagur, júní 14, 2003

Fyrir ykkur badmintonáhugafólk þá var innflutningspartý hjá Viggu í gærkvöldi. Íbúiðin hennar er bara rosalega fín, rúmgóð 2.herbergja. Gaman að hitta krakkana aftur, ég er búin að vera í alveg rúmlega mánaðar fríi. En það fer að koma tími á það að ég fari að láta sjá mig meira niðri í TBR.

fimmtudagur, júní 12, 2003

Það er svo gaman þegar það er svona gott veður, ég skellti mér í sund í gærkvöldi í glampandi sól. Í hádeginu í dag þá var alveg fullt af fólki úti á Austurvelli, gaman að vera að vinna niðri í miðbæ á svona degi þegar mannlífið er eins og það gerist best :)
Seinasta helgi var bara mjög skemmtileg, útskriftin hjá Hrund var rosa vel heppnuð og held ég að fólk hafi almennt skemmt sér mjög vel. Fór líka í afmæli eftir útskriftina sem var mjög skemmtilegt. En bæjarheimsóknin var frekar stutt þetta kvöldið því það lokaði bara kl. 3 þegar ég var að mæta á svæðið.

föstudagur, júní 06, 2003

Jæja, þá er ég komin heim í hversdagsleikann hér á Íslandi. Vid Þröstur lentum i sma ævintýri á heimleiðinni, þegar við mættum út á flugvöll í Alicante þá stóð bara að fluginu til Stansted væri aflýst út af verkfalli flugumferðarstjóra í Frakklandi. Þá voru góð ráð dýr, við fengum miðann endurgreiddan og keyptum okkur í staðin miða til Köben og breyttum miðanum frá London til Íslands í Köben - Ísland. Þetta gekk bara ágætlega, gistum hjá Söru í Köben eina nótt, það var eins og ég hefði skroppið bara í smá heimsókn til hennar. Það var náttulega alveg frábært að hitta hana þó svo að stoppið hafi verið stutt.
En við komumst þó heil á húfi heim. Ég byrjaði að vinna í gær og svo er það bara djamm um helgina, útskrift hjá Hrund á morgun og afmæli hjá vinkonu Þrastar. Ég hlakka nú dáldið til að djamma hérna heima, svo langt síðan síðast.