föstudagur, febrúar 27, 2004

Jæja þá er vikan bara að klárast og helgin að ganga í garð. Þetta á sko örugglega eftir að vera mjög skemmtileg helgi allavega er mikið um að vera. Í kvöld er afmæli hjá Unni Eir og svo annaðkvöld eru það 3 útskriftaveislur þannig eitthvað þarf að pússla þeim saman.
Ég er annars búin að vera ágætlega dugleg að læra í þessari viku og ætla jafnvel að reyna að halda því áfram yfir helgina en sjáum samt aðeins til með það.

Við Oddný eyddum gærkvöldinu saman í eiginlega bara svona chillkvöld, kjöftuðum, horfðum á kassann o.fl. Ekkert smá gaman að hitta hana og kjafta svona face to face en ekki alltaf að tala saman bara í síma.

Jæja, er ekki spurning að halda áfram að læra (er nebblega á hlöðunni), ég skil ekki hvað er að koma fyrir mig. Svo ólíkt mér að vera eitthvað að læra svona mikið a.m.k. í febrúar. En held það sé bara góðsviti, ég er komin með það viðhorf að líta á þetta sem vinnu (hehe...ekki seinna vænna á síðustu önninni minni).

miðvikudagur, febrúar 25, 2004

Dem við náðum ekki að klára að flytja allt verkefnið í morgun, bara helminginn en töluðum samt í svona 45 mín. Við klárum síðasta caseið næsta miðvikudag, ég held samt að fólki hafi fundist þetta nokkuð áhugavert og mynduðust fullt af umræðum, við fengum meira að segja hrós fyrir skemmtilegan fyrirlestur frá nemendum sem hlýtur að boða gott :)

Haldi þið að hún Oddný mín sé ekki að koma til borgarinnar í dag, það verður ekkert smá gaman að hitta hana. Við ætlum að gera eitthvað skemmtilegt saman.

þriðjudagur, febrúar 24, 2004

Ótrúlegt en satt þá er ég mætt á hlöðuna og klukkan svona lítið, mætti kl. 9 takk fyrir, þetta hefur ekki gerst á þessu ári. Ég er mætt svona snemma því ég keyrði Þröst í vinnuna í morgun, drengurinn var að byrja í nýju djobbi sem er rosa spennandi. Vonandi verð ég bara ennþá duglegri við þessi tíðindi og fer að taka skólann eins og vinnu og mæta á hlöðuna og læra til 5 :)
Við eigum að flytja verkefnið okkar í fyrramálið sem öll helgin fór í að gera og ég reikna með að meirihluti dagsins í dag fari líka í þetta verkefni en vonandi á það eftir að ganga vel, ég bið til Guðs að kennarinn reki ekki úr okkur garnirnar með erifðum spurningum sem okkur yfirsást en we´ll see tomorrow.

Ég fékk leyfi hjá hópnum að skreppa í saumaklúbb á sunnudagskvöld og það var í raun það eina sem ég gerði þessa helgina (fyrir utan verkefnavinnu). Þetta var badmintonsaumó og hann var haldinn heima hjá Viggu, rosa góður matur og fullt af gúmmulaði.

laugardagur, febrúar 21, 2004

Klukkan rétt rúmlega 12 og ég löngu vöknuð, var að mæta upp í skóla til að eyða deginum í verkefnavinnu. Mín vaknaði bara hress og útsofin kl. 8 í morgun eftir 9 tíma svefn og dreif mig á badmintonæfingu, ekkert smá hressandi að byrja daginn á erfiðri æfingu.

miðvikudagur, febrúar 18, 2004

Þröstur minn kominn til landsins eftir að hafa verið viku lengur en ég í Köben. Það var nú ljúft að fá drenginn heim. Ég tók eftir smá breytingum hjá mér þegar ég var ein m.a. sú að ég nennti síður að fara að sofa á kvöldin og skellti frekar einni DVD í tækið og sofnaði fyrir framan kassann. Einnig hlustaði ég nokkrum sinnum á Sigurrós (bæði Ágætis byrjun og () ) þetta eru svo góðir diskar báðir tveir, mér finnst best að hlusta á þá þegar ég er að læra eða að vinna.

En án gríns þá er þessi önn hálfnuð í skólanum, ég trúi því varla mér finnst ég bara vera nýbyrjuð. Ég ætla að reyna að spýta aðeins í lófana núna svo ég lendi ekki í ruglinu í lokin.
Svo á hópurinn minn að flytja 3 case í næstu viku í endurskoðun þannig býst við að helgin fari að miklu leyti í það. Frekar stressandi þar sem kennarinn situr og spyr okkur út úr og bekkurinn líka, við verðum semsagt að hafa þetta gjörsamlega alveg á hreinu ef við viljum ekki láta setja okkur út á gat.

sunnudagur, febrúar 15, 2004

Er ekki komið nóg af hangsi og leti í dag, ég held ég verði að fara að bretta upp ermarnar og fara að kíkja í bók. Erfitt að læra á þynnkudegi en er ekki bara málið að skella í sér einum Magic og þá verður þetta ekkert mál?
Það var mjög gaman í afmælinu hjá Maríu í gærkvöldi, geggjaður mexícanskur matur. Við stelpurnar fórum svo í bæinn á Hverfis og Vegamót og vorum að fram á morgun og skemmtum okkur rosa vel.

laugardagur, febrúar 14, 2004

Ég fór í saumó í gærkvöldi, spiluðum stórskemmtilegt spil sem við gáfum Regínu í afmælisgjöf Mr. and Mrs. og það var sko hlegið meira að segja svo mikið að það féllu nokkur tár ótrúlega fyndnar sumar spurningarnar, hehe....og sumir misskildu spurningarnar þannig þetta varð ennþá fyndnara.

Í kvöld er það svo afmæli hjá Maríu, matur og læti. Til hamingju með afmælið (í gær reyndar)

föstudagur, febrúar 13, 2004

Ragga var að setja inn myndir frá Þorrablótinu í Köben, tékkið á því HÉR
Það var afmæli hjá Regínu í gærkvöldi og er hægt að sjá myndir frá því hér . En það var rosa fínt í afmælinu talað mikið og borðað svona eins og oft þegar stelpur hittast.

Ég er alveg búin að sjá það að ég verð að fara að læra meira á þessa heimasíðu, er búin að vera að reyna að setja inn commentakerfi en það hefur ekki gengið ennþá allavega en er í vinnslu. Ef einhver getur hjálpað mér þá er það vel þegið.
Ég er búin að bæta við nokkrum linkum og endilega tékkið á þeim, hjá Fjólu, Unni Agnesi og Steina og Hlyni.
Aldrei að vita nema ég bæti fleiri linkum við á næstunni

miðvikudagur, febrúar 11, 2004

Haldi þið að það hafi ekki liðið yfir einn í tíma hjá mér áðan. Gerðist rétt fyrir kl. 9 og hópurinn hans stóð uppi á tölfu og var að kynna case sem þau höfðu gert. Ég horfði á manninn og fannst hann eitthvað skrýtinn því augun í honum beindust beint upp í loft og svo bara dink hann datt í gólfið. Greyið maðurinn, hann skall samt ekki með höfuðið í gólfið en hefur líklega meitt sig eitthvað smá. Hann rankaði strax við sér aftur en dreif sig samt upp á spítala. Það var rosalega heitt í stofunni þannig það gæti verið skýringin og þegar mér er heitt hvernig líður hinum þá því mér er næstum alltaf kalt. Vona að allt sé í lagi með manninn.

þriðjudagur, febrúar 10, 2004

Þessi dagur byrjaði nú frekar brösulega, ég ætlaði að hella mér í verkefnið í upplýsingakerfum sem ég á einmitt að skila á morgun en þá bilaði einhver ljósleiðari þannig að netið datt niður í Breiðholti og Árbænum þannig....ég skellti mér bara upp á hlöðu og er búin að vera þar í dag. Get samt ekki sagt að ég sé búin að vera neitt svo dugleg, ætli kvöldið fari ekki allt í þetta verkefni.

Þið sem eruð búin að sjá Moggann í dag þá var mynd af henni Söru minni á forsíðunni og bara huge viðtal á íþróttasíðunum og risa mynd af henni og Rögnu. Eru þrr bara orðnar stjörnur hérna á Íslandi eða hvað??
Það er verið að tala um ferð Söru til Írans, það var ótrúlegt að heyra sögur frá þessari ferð hjá henni. Stelpurnar þurftu að vera með slæðu yfir höfuðið því annars var bara glápt á þær, hún sagði samt að allir hefðu verið voða nice og þetta hefði verið mjög fínt en samt svolítið skrýtið.

mánudagur, febrúar 09, 2004

Jæja þá er maður kominn heim úr fríinu og þvílíkar móttökur alveg grenjandi rigning og brjálað rok, þetta land er ekki byggilegt. Ég yfirgaf Köben í sól, logni og það var næstum alveg heiðskírt og svo kemur maður hingað í þetta drungalega veður.
En það var annars alveg frábært í Köben, fórum á Þorrablót í Christianiu á laugardagskvöld sem var mjög fínt. Höfðum það svo bara huggó í gærkvöldi og skruppum út að borða og gistum svo hjá Söru í nótt en hún var sjálf ekki heima þar sem hún fór til Slóvakíu fyrr um daginn.
Ótrúlegt flökkulíf á stelpunni, heim frá Íran á laugard og svo Slóvakía á sunnud.
Ég er allavega komin heim en Þröstur ætlar að vera aðeins lengur í Köben

laugardagur, febrúar 07, 2004

Allt fínt að frétta hérna í Köben, ég er búin að þræða allar verslanir borgarinnar og kortið alveg að soðna sökum ofnotkunar. Ég mæli pottþétt með þessari borg til þess að versla í, ég er allavega alveg veik.
Það var farið út á lífið á fimmtudaginn á bar sem er í skólanum (CBS) og það var rosa mikið af fólki og mjög gaman. Fínt að geta bara rölt heim eftir djammið (búum rétt hjá)
Fórum í mat til Röggu og Jóns og var gaman að hitta þau, við Ragga skruppum líka í smá verslunarleiðangur í gær.
Sassa Jóns kom til Köben í dag frá Íran og ætlum við að gera eitthvað saman í kvöld.
Bestu kveðjur frá Köben

sunnudagur, febrúar 01, 2004

Jæja, helgin að klárast og ég ekki búin að opna bók alla helgina enda svosem ekki mikill tími sem ég hafði til þess. Ég var niðri í TBR allan laugardaginn og allan sunnudaginn, þetta minnti mig á þegar ég var yngri þegar ég var að keppa næstum allar helgar og maður þurfti að hanga niðri í TBR og bíða allan daginn. Þannig var semsagt dagurinn í dag hjá mér.
En þetta var samt skemmtilegt mót, alltaf gaman í svona liðakeppnum þar sem við keppum sem lið og er mikið öskrað á áhorfendapöllunum.

Það styttist óðum í Köben, ekki á morgun heldur hinn liggur leiðin yfir hafið. Það er alltaf gaman að skreppa þangað, hitta þá sem ég þekki þar og svo er bara svo gaman að spóka sig um Strikið, þræða kaffihúsin og H&M búðirnar.