fimmtudagur, febrúar 27, 2003

Próftaflan var að koma fyrir vorið, fyrsta prófið hjá mér er 25.apríl og það seinasta 13.maí, fer í alls 6 próf.
Var að koma úr bíó, fór að sjá myndina Gang´s of New York, algjör snilld þessi mynd. Daniel Day Lewis var geðveikt góður og ég gæti bara alveg trúað því að hann fengi Óskarinn fyrir hlutverkið, Leonardo DiCaprio og Cameron Diaz voru einnig meðal leikara

miðvikudagur, febrúar 26, 2003

Þetta verður sko busy helgi hjá mér. Á föstudaginn eru 2 vísindaferðir, Íslensk Verðbréfaskráning og Kaupþing. Ég ætla reyndar að vera róleg á föstudeginum en verð nú samt að kíkja á þetta og kannski aðeins út á lífið.
Á laugardaginn er svo tvöfalt afmæli, Unnur Eir og Inga Steinunn eiga báðar afmæli og ætla að halda það saman. Það verður örugglega geggjað stuð og ég get varla beðið eftir því.

þriðjudagur, febrúar 25, 2003

Vid Unnur Eir fórum saman í hádegismat í dag, skruppum á Brennsluna og það var voða nice og svo var það bókhlaðan sem tók við hjá mér en vinnan hjá henni.
Matarboðið á sunnudaginn gekk bara rosa vel, eldamennskan alveg að brillera hjá mér. En þetta var vel heppnað kvöld, mikið hlegið og mikið stuð.

laugardagur, febrúar 22, 2003

Þið sem þekkið mig vel trúið ekki ykkar eyrum þegar þið fréttið hvað ég er búin að vera að gera í kvöld!!! Ég er með köku í ofninum og það er ekki langt þar til hún verður tilbúin, þvílíkt góð lykt hérna, kremið ready til að fara ofan á þegar kakan kemur úr ofninum.
Hverjum ætti ég nú að leyfa að smakka þessa köku, fyrstir koma fyrstir fá :)
Ég er reyndar með matarboð annað kvöld og bara aldrei að vita nema matargestirnir fái kannski afganginn af kökunni ( ef þeir verða heppnir). Ég og bróðir minn ætlum pottþétt að vera fyrst til að smakka hana.
Jæja, verð að tékka á henni og athuga hvort hún sé ekki að verða ready.
By the way, Ragga gaf mér þessa uppskrift og þetta er kókoskaka, ummmm

föstudagur, febrúar 21, 2003

Jæja loksins búin í fjármálaprófinu, gekk bara bærilega. Skrapp í saumó til Ingu í gærkvöldi og fékk rosa góðar veitingar, hún var með svona Fondu. Hitaði súkkulaði í Fondupottinum og var svo með jarðarber, banana, kiwi o.fl.ávexti Þetta var alveg þvílíkt gott, mæli sko alveg tvímælalaust með þessu

miðvikudagur, febrúar 19, 2003

Það er allt að gerast annað kvöld, af hverju þarf allt að hrúgast á sama daginn og svo er oft ekkert að gerast ? Annað kvöld er mér boðið í saumaklúbb til Ingu, Stebbi og Eyvi eru að spila á Astro OG ég á að vera að læra undir próf sem er á föstudaginn. Hmmm...spurning um að reyna að forgangsraða eitthvað, ég verð að reyna að kíkja í saumó en held ég neyðist til að sleppa Stebba og Eyva í þetta skipti og læra í staðin.

þriðjudagur, febrúar 18, 2003

Það eru komnar myndir frá árshátíðinni á Magusarvefnum
Ég hélt ég mundi deyja í morgun, var í tíma í lögfræði B frá 8-11 og kennarinn talaði bara um víxla allan tímann og fór samtals yfir svona 12 glærur. Ekki datt mér í hug að það væri hægt að flækja þetta svona mikið og hverjum dettur í hug nú til dags að nota víxla, jú ok kannski nokkrum en ég rétt svo lifði tímann af. Er búin að vera á bókhlöðunni eftir hádegi og ætla að vera fram á kvöldmat, það er lærdómsmaraþon í gangi. Fattaði það að önnin er að verða hálfnuð og ég ekki enn farin að standa við áramótaheitið mitt, þ.e. að vera rosa dugleg að læra. En þetta er vonandi allt að koma :)

sunnudagur, febrúar 16, 2003

Var á árshátíð í gærkvöldi með Viðskiptafræðinni, hún var haldin í Skíðaskálanum í Hveradölum. Ég skemmti mér rosalega vel, maturinn var góður og rosa fjör á ballinu.En eins og oft þá er dagurinn á eftir yfirleitt ekki eins skemmtilegur.

fimmtudagur, febrúar 13, 2003

Fór í fyrsta skipti í Hreyfingu í dag, fann einhvern miða þar sem ég get farið frítt í 3 daga og prófað og að sjálfsögðu nýtti ég mér það. En það var rosa fínt þar og væri ég alveg til í að æfa þar, en eins og alltaf þá er þetta spurning um peninga. Ég kaupi mér yfirleitt líkamsræktarkort þar sem ég fæ það ódýrast, ég er svo mikill nýskupúki. Verður gaman að sjá hvað verður fyrir valinu :)
Ég var einnig í mömmuhlutverkinu í dag, var að passa prinsessuna hana Sóleyju, hún er algjört æði. Ég sótti hana til dagmömmunnar og var með hana á meðan Sæunn var að vinna. Það gekk mjög vel, hún er alltaf svo stillt og góð.

þriðjudagur, febrúar 11, 2003

Þvílíkt veður er á þessu landi, bara endalaus stormur, hvað er eiginlega að gerast. Ég var á æfingu áðan niðri í TBR-húsi og þakið nötraði alveg næstum eins og það væri að fara að hrynja.
Það er árshátíð hjá mér í skólanum á laugardaginn, hún verður haldin í Skíðaskálanum í Hveradölum og hlakka ég rosa mikið til. Allir að fara og það verður örugglega rosa stuð.

sunnudagur, febrúar 09, 2003

Skrapp í heimsókn til Sæunnar og Sóleyjar í gærkvöldi, Sóley er alltaf jafn mikil prinsessa. Svo auðvelt að fá hana til að hlæja og brosa og alltaf svo gaman að knúsast í henni.
Þetta er búið að vera hin fínasta helgi og samt ennþá einn dagur eftir af henni. Á föstudagskvöld fór ég í afmæli til Regínu og vil ég óska henni enn og aftur til hamingju með daginn. Það var rosa gaman heima hjá henni, þar rifjuðum við vinkonurnar upp gamlar minningar og Bjössi spilaði nokkur lög á gítarinn og Regína spilaði eitt lag með honum á píanó.
Í gær skrapp ég upp í Bláfjöll á skíði og var það sko vel þess virði, frábært færi en dálítið kalt. En ég skemmti mér mjög vel, það er alltaf jafn gaman að fara á skíði. Ég verð nú að bæta því við að ég keypti mér líka nýja skíðaskó á föstudaginn og þeir voru bara rosa góðir.
Í dag ætla ég að reyna að læra og vonandi gengur það vel því ekki veitir af.

fimmtudagur, febrúar 06, 2003

Ég er að fara í innflutningpartý í kvöld til Kidda og Guðnýjar, þau voru að flytja í íbúð á Lokastíg. Inga og Alli eru líka að flytja í nýja íbúð í dag, ég vona að mér verði fljótlega boðið í innflutningspartý til þeirra líka. Allir eitthvað að flytja núna, af hverju flyt ég aldrei neitt ???
Jæja, nú verð ég að fara að læra og gera eitthvað að viti. Er búin að vera að taka til síðan ég kom úr skólanum. Var reyndar rosa dugleg, viðraði sængurnar, þvoði, ryksugaði og fleira. En það þýðir ekki að eyða deginum bara í einhverja tiltekt.

mánudagur, febrúar 03, 2003

Tók mig til og þreif bílinn minn að innan áðan, skrúbbaði hann alveg hátt og lágt. Ætlaði að þrífa heima hjá mér líka en efast um að ég meiki það líka í dag en well see hvað ég verð í miklu stuði.
Ætla að skreppa aðeins á Háskólakynningu upp í HR á eftir, verið að kynna The University of Warwick. Ég ætla að vera dugleg að kynna mér einhverja skóla erlendis því stefnan er tekin á framhaldsnám.