þriðjudagur, apríl 29, 2003

Ég vildi óska þess að það væru 31 dagar í apríl en ekki bara 30
Aðgerðarannsóknarprófið gekk bara ágætlega í dag svo er það bara próf dauðans á föstudaginn, Þjóðhagfræði B.

mánudagur, apríl 28, 2003

Ég gleymdi að segja ykkur að ég prófaði að keyra vespu um helgina, pabbi hans Þrastar var að kaupa sér eina slíka og þetta er alveg geggjað. Þið sem eruð að spá í að kaupa ykkur bíl á næstunni, þá mundi ég frekar tékka á vespu :)
Skellti mér líka í sund í gærkvöldi, nauðsynlegt að hreyfa sig eitthvað aðeins í prófunum, synti, fór í gufu og pottinn og kom alveg endurnærð heim og hélt áfram að læra.

sunnudagur, apríl 27, 2003

Ingvi og Karen eru komin með heimasíður
Það er allt í volli hjá mér, tölvan mín er biluð og það er eins og vinstri höndin hafi verið tekin af mér. Ég verð að nota hina heimilistölvuna sem er á hæðinni fyrir ofan, þvílíkt sem er lagt á mann :) Samt frekar pirrandi þegar svona gerist í miðjum prófum þegar tíminn er það dýrmætasta sem ég á núna. Svo er síminn minn ennþá bilaður, fékk nýtt simkort á föstudaginn en ekkert dugar, veit ekki hvað ég á að gera í sambandi við símann, signalið dettur alltaf út.

föstudagur, apríl 25, 2003

Fyrsta prófið búið og 5 eftir. Var að koma úr lögfræðiprófinu og gekk bara ágætlega. Þá er það bara að einbeita sér að næsta prófi, Aðgerðarannsóknum, sem er á þriðjudaginn. Ufff...ekki beint það sem mig langar að gera núna að fara að læra, spurning hvort ég finni mér eitthvað annað að gera fyrst :)

fimmtudagur, apríl 24, 2003

Ég er alveg á fullu í próflestri, er að fara í próf í Lögfræði B á morgun. En það er einhvern vegin allt að bila hérna í kringum mig, skil ekki alveg hvað er að gerast. Byrjaði með því að síminn minn bilaði í gær, en það er svosum ekkert nýtt svo snappaði tölvan mín og hún er í tómu tjóni þannig að ég þarf að nota aðra tölvu og svo var ég að prenta út áðan og haldiði að prentarinn hafi ekki snappað líka. Hvar endar þetta? Kannski eru þetta bara skilaboð um það að ég eigi bara ekkert að nota þessi raftæki meir, á bara að læra þessar glósur utanað, ég held ég fari bara í þann pakka. Ætlaði bara að prenta út lög um EES - samninginn, en ég verð bara að sleppa því

sunnudagur, apríl 20, 2003

GLEÐILEGA PÁSKA :)
Pössunin gekk bara vel í gærkvöldi, hann Axel vaknaði einu sinni og vildi bara fá snuðið sitt. Hann er með heimasíðu aðeins 7 mánaða, hægt að sjá hana hér

laugardagur, apríl 19, 2003

Ég er að fara að passa litla frænda minn í kvöld, hann er bara 7 mánaða og heitir Axel Harry. Hann er algjört æði og þvílíkt krútt, vonum bara að hann verði stilltur :)
Það er því miður voðalega lítið að frétta af mér þessa dagana, ég er að þykjast vera að læra alveg á fullu. Það hefur reyndar gengið alveg ágætlega en er orðin frekar þreytt á þessu (en samt eru prófin ekki einu sinni byrjuð). Fyrsta prófið hjá mér er á föstudaginn 25. apríl og þá er það lögfræði B, ég býst við því að vikan fari í það að læra undir það próf. Núna seinustu daga hef ég verið í öðrum fögum, vinna upp gamlar syndir, lesa heilu bækurnar sem ég hafði trassað. Skil ekki þessa lærdómsaðferð hjá mér, alltaf þegar kemur að prófum á ég alltaf eftir að lesa heilu bækurnar, hvað í óskupunum er ég að gera alla önnina, ég bara hreinlega skil það ekki, allavega eitthvað annað en að lesa kennslubækurnar.

þriðjudagur, apríl 15, 2003

Var að koma af badmintonæfingu, ég held samt að þetta hafi verið síðasta æfingin hjá mér í bili. Er að hugsa um að taka mér smá frí þar til í byrjun júní en verð nú samt að halda mér í formi og fara út að hlaupa og lyfta eitthvað í prófunum. En þetta kemur í ljós, getur verið að ég fari nú á eina og eina æfingu. Lærdómurinn hefur nú ekki gengið neitt brjálað vel hjá mér í dag, verð að fara að vera duglegri svo ég komist einhvern tíman yfir allt þetta efni sem ég þarf að læra.

mánudagur, apríl 14, 2003

Árshátíðin heppnaðist alveg rosalega vel hjá okkur í saumaklúbbnum, fórum í badminton, út að borða á Ítalíu og svo heim til Ingu þar sem við skemmtum okkur konunglega. Unnur Eir eignaðist lítinn frænda um nóttina.
En þá er það bara próflesturinn sem er að hefjast, ég opnaði ekki bók um helgina svo nú er bara að duga eða drepast og taka sig verulega á.

laugardagur, apríl 12, 2003

Jæja, skólinn alveg að klárast, ég er að fara í seinasta tímann á þessari önn á eftir. Þessi vika er búin að vera frekar strembin, var að vinna rosalega mikið (3 daga og alveg fram á kvöld) og skilaði 2 stórum verkefnum í gær, einu 40% verkefni og öðru 20% þannig...ég átti ekkert líf þessa vikuna.
En í dag ætlum við að halda árshátíð saumaklúbbsins, ætlum að fara í badminton kl. hálf 3, keilu o.fl - verður geggjað gaman hjá okkur og ég hlakka mikið til.

mánudagur, apríl 07, 2003

Jæja, Íslandsmótið í badminton búið, það er endirinn á tímabilinu og var því slúttað með stæl í gærkvöldi. Hittumst öll á Hard Rock og borðuðum og svo var partý heima hjá Svenna. Það var rosa gaman, alltaf fjör á þessu liði, dansað og tjúttað fram á nótt.
Fyrir ykkur sem vissuð það ekki þá vann Svenni einliða karla og Tommi í öðru, Helgi og Broddi unnu tvíliða karla og Svenni og Tryggvi í 2.sæti. Ragna vann einliða kvenna og Sara í 2.sæti, Katrín og Ragna unnu tvíliða kvenna og Sara og Drífa í 2.sæti og að lokum unnu Svenni og Drífa tvenndar og Sara og Helgi í 2.sæti.

laugardagur, apríl 05, 2003

Hvaða gestur verður númer 2000??? Sá heppni endilega senda mér mail á uym@hi.is
Jæja dagurinn í gær búinn, hann var nú frekar strembinn enda var ég alveg dead í gærkvöldi og sofnaði sitjandi fyrir framan sjónvarpið. Var að læra undir fjármálaprófið sem byrjaði kl. 3 í gær og var til 5. Eftir það hitti ég hópinn minn í aðgerðarannsóknarverkefninu og við unnum í því og svo fór ég beint niður í TBR að keppa og var þar til 10.
Ég tapaði reyndar báðum leikjunum mínum í gær, snökt, en spilaði við Söru í einliða og Rögnu og Njörð í tvennda en svo er tvíliða í dag.

fimmtudagur, apríl 03, 2003

Afmæli hjá Magga í kvöld, hann er ekkert smá flottur á því, ætlar að elda ofan í gestina. Við höfum líka öll beðið eftir því að fara í mat til hans þar sem hann er nú að læra kokkinn :) En hann á reyndar ekki afmæli fyrr en á laugardaginn en óskum honum samt til hamingju með daginn.

miðvikudagur, apríl 02, 2003

Ohhh...ég nenni ekki að læra, er að reyna að læra undir prófið sem er á föstudaginn. Fór eitthvað svo seint að sofa í gærkvöldi því ég mátti nú ekki missa af Survivor og svo var skóli 8 í morgun.
Ég vildi svo óska þess að ég byrjaði ekki í skólanum fyrr en kl. 9 á morgnana, þá þyrfti ég örugglega ekki að fá mér Magic nánast á hverjum degi til að halda athyglinni við bækurnar sökum þreytu.
Sara kemur til landsins í dag :)

þriðjudagur, apríl 01, 2003

Ég er búin að vera alveg rosalega dugleg í dag, var búin í skólanum kl. 11 í morgun og kom heim og þreif íbúðina mína alveg hátt og lágt. Eftir það er ég búin að vera á fullu að læra undir fjármálaprófið sem er á föstudaginn. Skilaði 2 verkefnum í skólanum í gær og á eftir að skila einu huge verkefni í næstu viku, þannig...það má eiginlega segja að það sé allt brjálað að gera hjá mér þessa dagana. Íslandsmótið í badminton er svo um helgina og fer mestöll helgin því í það, búið er að draga í mótið og hægt er að sjá það hér