laugardagur, nóvember 20, 2004

Spurning hvort ég ætti að skella mer í auglýsingabransann bara, ég var í auglýsingu fyrir Moggann síðasta sunnudag. Ég vissi ekki að þessi mynd hafði verið tekin en hún var tekin þegar ég var að keppa í badminton á föstudaginn fyrir viku síðan.
Starfsdagur bankans var siðasta laugardag og voru fyrirlestrar allan daginn og svo matur og diskó um kvöldið.

Ég var með saumó í vikunni og svo matarboð í kvöld þannig spurning um að fara bara að taka aðeins til og elda fyrir kvöldið.

Ég fór í fyrsta skipti í world class í spönginni í dag og það var rosa fínt bara, held ég eigi alveg eftir að fara aftur þangað. Manni líður alltaf svo vel þegar maður er búinn að hreyfa sig.

þriðjudagur, nóvember 02, 2004

Margt búið að gerast síðustu 1 og hálfa vikuna, ég er orðin viðskiptafræðingur og búin að skreppa aðeins til Köben. Útskriftardagurinn var alveg frábær og ég set inn fleiri myndir af honum fljótlega. Það var rosalega gaman í Köben um helgina, ég verslaði aðeins, mamma hans Þrastar hélt upp á stórafmæli þar á laugardaginn og var sá dagur alveg ógleymanlegur, ég hitti Röggu aðeins í gær í verslunarleiðangri. Verst var samt að geta ekki hitt Björk en hún var í London akkúrat um helgina. Núna er það svo bara hið daglega líf sem tekur við og það styttist óðum í jólin :)