laugardagur, maí 31, 2003

Tha erum vid komin til Alicante, rosa fint herna. Vorum a strondinni i dag og i gaer. Hittum Islendingana i gaer, Ola, Agnesi og Bjarka litla, Tryggva, Odin og Sonju. Erum a leidinni i bjor og svo er planid ad fara ut ad borda med theim i kvold.
Komum svo heim ad kvoldi til 3. juni eftir pissustopp i London.
Bestu kvedjur ur hitanum.

miðvikudagur, maí 28, 2003

Hola, nuna er eg stodd i Valencia, tokum lestina hingad fra Barcelona i dag og tok thad 3 klst. Nyttum daginn i gaer i Barcelona vel, byrjudum a tvi ad skoda kirkjuna La Sagrada Familia sem var nota bene beint fyrir utan stofugluggann okkar. Thessi kirkja er ekkert sma flott en thad er enntha verid ad byggja hana og eg efast um ad hun verdi tilbuin a medan eg lifi (en vona thad tho).
Skodudum svo gard, Park Guell, Gaudi hannadi thennan gard og saum husid hans lika. Eftir thad forum vid nidur i midbaeinn og skodudum fraegt hus sem Gaudi hannadi sem var alveg rosa flott. Forum a strondina i ca 1 klst, ekki var thad long strandarferd. Ekki amalegt ad sitja a strondinni med bjor i hond.
Endudum svo daginn a djammi med Sirry og Adda (thau bua i Barcelona), hittum thau a geggjudum bar. Eldgamall, orugglega meira en 100 ara. Fraegu kallarnir attu vist ad hafa drukkid a thessum stad, Picasso, Gaudi og fleiri. Fengum ad smakka serstakan drykk sem mennirnir attu ad hafa drukkid og var hann saemilegur (get eiginlega ekki sagt ad hann hafi verid godur).

mánudagur, maí 26, 2003

Planid fyrir daginn i dag var ad fara til Andorra i dagsferd, en thegar vid maettum ut a lestarstod tha komumst vid ad tvi ad engin lest fer til Andorra og ad vid hefdum misst af rutunni thangad. Leidin thangad tekur lika 3-4 klst sem er nu heldur mikid fyrir dagsferd. Akvadum tvi i stadin ad fara a Picasso safnd en thegar vid maettum thangad tha var thad lokad, thad er lokad ALLA manudaga.
A morgun er seinasti dagurinn okkar her i Barcelona og aetlum vid ad skoda kirkjuna La Sagrada Familia, fara a Picasso safnid o.fl.
A midvikudaginn liggur leidin sudur

laugardagur, maí 24, 2003

Buid ad vera alveg frabaert herna i Barcelona, Unnur og Kiddi komu a fimmtudaginn og forum vid adeins ut a lifid thad kvold. I gaer skodudum vid FC Barcelona ( Football Club Barcelona), hann er ekkert smá stór, tekur 120.000 manns. Fórum einnig í smá útsýnisferd um borgina. Í dag forum vid i skemmtigard sem heitir Tibidabo, hann er i haed fyrir ofan borgina og thad var alveg frabaert utsyni ur gardinu yfir alla borgina. Forum i nokkur taeki sem voru mjog fin. I kvold er thad svo Eurovisiondjamm, vid aetlum ad reyna ad finna okkur einhvern stad sem synir keppnina svo vid getum sed hana, en hun er nu lika synd i sjonvarpinu herna.

miðvikudagur, maí 21, 2003

Komum til Barcelona i gaer, ibudin er a alveg brilliant stad - La Sagrada Familia blasir vid fyrir utan stofugluggann hja okkur. Erum buin ad vera ad rolta um baeinn og skoda okkur um. Thad eru alveg fullt af flottum budum herna og baerinn er alveg huge. A morgun koma svo Unnur og Kiddi hingad og Ragga og Jon Audunn eru lika a leidinni i utskriftarferd med tolvunarfraedinni.
Einkunnirnar eru ad detta inn og vid erum alveg i skyjunum, svoleidis tilefni til ad skala i kvold hja okkur og halda uppskeruhatid.

mánudagur, maí 19, 2003

Dvölinni í Danaveldi að ljúka, fórum í mat til Margrétar og fjölskyldu í gærkvöldi og það var mjög fínt. Þau búa í nágrannabæ Kaupmannahafnar sem er alveg æðislegur, fullt af trjám og rólegt hverfi.
Í dag fórum við að skoða CBS (Copenhagen Business School) og fengum nokkra bæklinga. Fórum svo á Strikið og versluðum aðeins, nauðsynlegt að fara í H&M, alltaf hægt að finna svo mikið þar. Enduðum svo daginn á því að fara í Tívolíið en það var reyndar ekki svo góð hugmynd. Því öll fermingarbörnin í Kaupmannahöfn voru á svæðinu og þar af leiðandi þvílíkt langar raðir í öll tækin. Við fórum því bara í 1 tæki og þurftum að bíða óralengi, töfrateppið varð fyrir valinu og var ferðin alveg frábær.
Við kveðjum svo í fyrramálið því þá er ferðinni heitið til Barcelona.
P.S ég fékk fyrstu einkunnina í dag og ég er bara mjög ánægð með hana :)

sunnudagur, maí 18, 2003

Allt fínt að frétta frá Köben, röltum á Strikinu í gær og það var alveg fullt af fólki og fín stemning og án gríns það er allt morandi í Íslendingum hérna. 'Eg, Sara, Aðalheiður og Davíð fórum í partý til Tryggva en Þröstur fór að hitta gamla Kibbutz vini og fleiri. Fórum svo á stað sem heitir Jazzhouse og þar var dansað og dansað, fínn staður alveg fullt af fólki.
Í dag ætlum við í heimsókn til frænku Þrastar en annars er ekkert meira plan fyrir þennan dag.
Á morgun ætlum við að skoða CBS, Cobenhagen Business School, versla og fleira.

föstudagur, maí 16, 2003

Þá erum við komin til Köben, ferðin gekk ágætlega. Hitti nokkra gamla skólafélaga á flugvellinum og auðvitað Davíð og Aðalheiði. Við tókum lestina í bæinn og löbbuðum aðeins um og fengum okkur að borða og Sara kom svo og hitti okkur. Núna er bara afslöppun hérna heima hjá Söru. Í kvöld ætlum við að fara í Tívolíið á tónleika og hitta eitthvað fólk þar.

fimmtudagur, maí 15, 2003

Þá er ferðalagið að hefjast á morgun og fyrsti viðkomustaðurinn verður Köben eins og líklega allir hafa tekið eftir. Sara bíður mín á Hovedbane og ætlum við að gera eitthvað sniðugt um helgina. Ég þarf að pakka í kvöld, er ekki byrjuð á því.
Verð bara að segja ykkur að ég held að símavandamálið mitt sé loksins að leysast, fór niður i Hátækni í dag og talaði við fólkið þar og þau eru öll af vilja gerð þar. Gengur ekki að gera við símann þannig...ég fæ nýjan og Ekki sömu tegund því gamli síminn minn var bara mesta drasl í heimi. Við vonum bara innilega að þessi verði í lagi því annars bara hætti ég að nota gemsa or whatever.

miðvikudagur, maí 14, 2003

Hvernig væri nú að fólk skrifaði í gestabókina því ég held að það sé enginn sem les þessa síðu
Ég er að spá í að þrífa allt í dag, skrúbba og bóna, því ekki veitir af eftir próflesturinn. Svo þarf ég að vera dugleg að þvo fyrir útlandaferðina sem hefst á föstudaginn, jibbý..ég get ekki beðið. Talaði við Söru í gær og hún ætlar að hitta okkur á Hovedbane í hádeginu á föstudaginn. Verðum í Köben frá föstudegi-þriðjudags en á þriðjudaginn liggur leiðin til Barcelona þar sem við hittum Unni Eir og Kidda. Planid er ad vera í Barcelona í rúmlega viku og keyra svo niður til Alicante og heimsækja Tryggva og Óðinn sem eru í skóla þar. Ef þið verðið heppin þá reyni ég að skrifa hérna á meðan á ferðalaginu stendur.

þriðjudagur, maí 13, 2003

Ég fékk rosa flott boðskort í pósti í gær og var verið að bjóða mér í brúðkaup í sumar til Áslaugar og Óskars þann 12. júlí. Ég hlakka ekkert smá til, það er alltaf svo gaman í brúðkaupi.
PRÓFIN BÚIN, jæja þá eru þessi próf loksins búin. Fjármálaprófið var samt frekar erfitt og var fólk almennt ekki sátt, en við vonum bara það besta. Ég hef eiginlega bara verið að njóta þess að gera ekki neitt í dag, búin að horfa á 2 myndir og er ekki hætt :) Á morgun verður svo tekið til og bakað eitthvað fyrir saumaklúbbinn sem ég er með annað kvöld.

mánudagur, maí 12, 2003

Seinasti dagurinn sem ég þarf að læra þessa önnina, fjármálaprófið á morgun kl. 9. Ég get ekki beðið eftir morgundeginum og svo er það bara Köben á föstudaginn. Þar verður próflokunum svo sannarlega fagnað, ég gisti hjá Söru og við erum að vinna í því að skipuleggja helgina :) Davíð og Aðalheiður verða líka í Köben um helgina þannig...það verður alveg svaka fjör.

sunnudagur, maí 11, 2003

Jæja, þá eru kosningarnar búnar, þetta var mjög spennandi ekki hægt að segja annað. Mér hefur því miður ekki gengið vel að læra þessa dagana, athyglin ekki alveg til staðar. En það er stutt í prófið, verð að vera dugleg í kvöld og á morgun.

föstudagur, maí 09, 2003

Eftir eina viku verð ég í Köben :)
Gleymdi að segja ykkur að gemsinn minn er aftur farinn í viðgerð, pæliði í þessu, hvernig er þetta hægt. Ég held að gaurarnir þarna niðri í Hátækni séu bara í einhverju rugli, þetta er í 4. skipti sem síminn minn fer til þeirra og þeim tekst aldrei að gera almennilega við hann. Núna er ég með einhvern lánssíma, en hann virkar þó og það er nú fyrir öllu.

fimmtudagur, maí 08, 2003

Jæja þá er ég búin með 5 próf og bara 1 eftir, Fjármál næsta þriðjudag. Úfff...ég er alveg dead-þreytt eftir að hafa farið í 2 próf á 2 dögum, það ætti að banna þetta. Ég gæti svoleiðis farið að sofa núna en held ég reyni nú að þrauka aðeins lengur og kíkja á kassann.

miðvikudagur, maí 07, 2003

U.þ.b. 35 mínútur í stjórnunarprófið, ég get ekki sagt að ég sé að nenna að fara í þetta próf. Ég veit eiginlega ekkert hvað ég kann mikið, ég fæ að hafa öll gögnin með og spurningarnar á prófina verða einhver case sem þarf að leysa og hanna einhver líkön, Guð...ekki veit ég hvort ég eigi eftir að geta þetta en það kemur þá í ljós, wish me luck. Later

mánudagur, maí 05, 2003

Frekar strembnir dagarnir hjá mér þessa vikuna, er að fara í próf á miðvikudaginn og fimmtudaginn og mér finnst ekkert smá erfitt að læra fyrir bæði prófin í einu, á örugglega eftir að rugla námsefninu saman. En ég get samt eiginlega ekki kvartað yfir þessu því á síðustu jólaprófum var Þröstur í 4 prófum á 4 dögum og ég skil ekki ennþá hvernig hann fór að því.
Ég fór á bókhlöðuna í dag en entist þar bara til 4, það er alltof mikið af fólki þar og mikið ráp og umgangur. Þegar ég er orðin vön að læra á bókasafninu í herberginu mínu með bestu aðstöðuna þá get ég bara ekki annars staðar verið.

föstudagur, maí 02, 2003

María er byrjuð að blogga aftur, ég vona að hún verði duglegri að uppfæra núna :) Hún setti inn myndir síðan úr afmælinu mínum síðustu jól, endilega kíkjið á það hér
Mér gekk nú bara betur í þjóðhagfræðiprófinu en ég þorði að vona en get samt voða lítið sagt, þetta verður að koma í ljós. En það borgaði sig svo sannarlega að læra til 3 í nótt því það komu nokkrir krossar um það efni. Skrapp aðeins í sund áðan og það er alltaf jafn hressandi, ég er alveg orðin fastagestur í Árbæjarlaugina þessa dagana :)

fimmtudagur, maí 01, 2003

Katrín var að setja inn myndir síðan á djamminu eftir Íslandsmótið, tékkiði á því hér
Ég sveik mig allsvakalega í gærkvöldi, var með kveikt á sjónvarpinu og sá að mamma og pabbi voru að byrja að horfa á einhverja mynd (videoið tengt niður til mín) og haldiði að ég hafi ekki bara hætt að læra og horft á alla myndina, meira kæruleysið í mér. En þessi mynd var mjög góð fannst mér, heitir High Crimes með Ashley Judd og Morgan Freeman, mæli með henni. Held reyndar að ég hafi ekki lært neina hagfræði á henni. Úfff....í sambandi við prófið sem ég er að fara í á morgun þá er ég aðeins meira en hálfnuð að fara yfir námsefnið, næ vonandi að klára þetta seint í kvöld eða nótt, erfiðustu kaflarnir eftir argggg.