þriðjudagur, mars 28, 2006

Eftir vikudvöl í Fossvoginum var hringt á bjöllunni hjá mér og Vottar Jehóva mættir á svæðið. Þarna kom sér svo sannarlega vel að vera með dyrasíma og búa í blokk þannig ég gat bara afþakkaði pent. Ég skil ekki alveg hvernig þetta fólk nennir að standa í þessu, ef maður hefði áhuga á að kynna sér Biblíuna eða trúarbrögð þá bara myndi maður sækjast eftir því sjálfur eða ég myndi bara gera það ekki fá einhverjar konur inn til mín til að segja mér frá þessu.

Það hefur annars verið alveg nóg að gera í að taka á móti gestum sem er bara gaman og allir ávallt velkomnir.

Annars heilsast öllum vel og ég meira að segja skrapp aðeins í ræktina áðan því ég fékk alveg nóg af átinu í mér hehe..ágætt að fá smá löngun til að hreyfa sig. En ég var nú ekkert að hlaupa einhverja 10 km þannig no worries, tók bara svona létt á því og fékk mér Boozt í kvöldmat þannig manni líður bara ansi vel.

Stóri dagurinn er orðinn 15. ágúst sem okkur finnst bara ansi fínn dagur, góður vinur Þrastar á afmæli þennan sama dag og svo er mamma þarna 10 dögum seinna. Þannig ef það verður ekki 15. þá verður maður að reyna að þrauka til 25. ágúst :)

föstudagur, mars 17, 2006

Þvílík snilld að vera 5 mín heim úr vinnunni á háannatíma :) Annars ganga flutningarnir og undirbúningurinn vel. Eldhúsið komið og næstum öll eldhúsáhöldin og fötin okkar í fataskápana.
Á morgun verður svo aðaldagurinn þar sem sendibíllinn mætir á svæðið og flytur allt sem eftir er. Eftir það verð ég svo officially flutt að heiman. Ég næ þá að flytja að heiman 25 ára :)

sunnudagur, mars 12, 2006

Jæja fer ekki að koma tími á smá update. Það er allavega allt gott að frétta af mér og öllum heilsast vel.

Það var annars alveg frábært í London síðustu helgi, stelpurnar eru nú búnar að segja eitthvað frá ferðinni. Í grófum dráttum vorum við að versla á Oxford Street og í Covent Garden, fórum út að borða á rosalega fína og góða staði, fórum í klappstýrudans sem var alveg frábær og mjög fyndið, fórum á vaxmyndasafnið, á bari og skemmtistaði og margt margt fleira. Þetta var í raun í 4.skipti sem þessi saumaklúbbur er samankominn í útlöndum og hafa allar ferðirnar verið alveg frábærar og vonandi bara að við höfum þetta árlegt hér eftir :)

Vikan var annars mjög fljót að líða, ég hitti Sæunni og Sóleyju á fimmtudaginn og var alveg frábært að hitta þær mæðgur og takk kærlega fyrir mig, allt dótið sem þið komuð með ég á bara ekki til orð. Það verður gaman að fá þær bara alveg heim.

Um helgina höfum við verið að hjálpa foreldrum Þrastar að flytja og flytja smá sjálf. Fórum með fyrstu kassana í dag en eigum samt eftir að klára að mála eldhúsið og baðið. Við stefnum samt á að reyna að flytja næsta laugardag og ég hlakka svo til þegar allt verður bara komið á sinn stað í nýju íbúðinni og allt verður tilbúið.

miðvikudagur, mars 01, 2006

Ég hef ekki ennþá komist að því hver gaf mér blómið sem beið mín. En ástæðan fyrir þessu er sú að það er svona leynivinavika þar sem árshátíðin er um helgina. Leynivinurinn minn er einn Þjóðverji. En þetta er mjög gaman og spennandi.

Svo er það bara London á morgun og mun ég eyða helginni þar. Ég get varla beðið eftir því að hitta saumaklúbbsskvísurnar. Við í rauninni stofnuðum saumaklúbbinn eftir að hafa verið allar saman í Austurríki sumarið 1998 sem var alveg frábær ferð í alla staði. Þar sem við búum ekki allar í sama landinu er fínt að nýta tækifærið og skreppa aðeins út.
Ég veit að þessi helgi á eftir að vera alveg ógleymanleg, á laugardaginn er svo sjálfur árshátíðardagur saumaklúbbsins og eru Inga og Unnur Eir búnar að plana hann og það verður spennandi að vita hvað við munum gera.
Svo munum við eflaust rölta um götur Lundúnar, skoða okkur um, fara á kaffihús, út að borða og fleira.