þriðjudagur, febrúar 28, 2006

Það beið mín bara bleikt blóm á skrifborðinu mínu þegar ég mætti í vinnuna í morgun, spurning hvort ég eigi leyndan aðdáanda í bankanum :)

sunnudagur, febrúar 26, 2006

Þá er gríðarlega mikilli vinnuhelgi að ljúka, við erum búin að vera að stússast í íbúðinni gjörsamlega alla helgina og maður er orðinn alveg búinn á því. Þetta er samt ekkert smá gaman, fullt af fólki að kíkja í heimsókn og kom amma svo sannarlega eins og kölluð í dag þegar hún mætti með heimagerðar bollur og allt með því og úr varð bara rosalegt bollukaffi í nánast tómri íbúð öll í drasli og með blauta málningu á veggjunum. Allir fjölskyldumeðlimirnir eru búnir að vera að hjálpa okkur alveg fullt, takk allir kærlega fyrir hjálpina og hefðum við aldrei getað verið komin svona langt nema með allri þessari hjálp.

Við skötuhjúin gerðum reyndar eitt annað um helgina en að vinna í íbúðinni og það var að fara í útskrift til Bergrúnar í gærkvöldi. Það var þrusu stuð, maður hitti alveg helling af gömlu versló félögunum og var mikið spjallað og ótrúlega gaman.

Nú er það bara afslöppun í kvöld og veitir svo sannarlega ekki af :) Ég get varla beðið eftir að við flytjum sem verður líklega ekki fyrr en í næstu viku eða þarnæstu helgi og þá get ég farið að bjóða ykkur öllum í heimsókn eða matarboð og bara allir velkomnir sem vilja :)

mánudagur, febrúar 20, 2006

Það er allt að gerast hjá okkur, fengum íbúðina afhenta í gærkvöldi þannig núna tekur málningarvinna við og svona ýmislegt sem við ætlum að gera en samt svosem ekkert eitthvað risa stórt en margt smátt gerir eitt stórt :)Við erum svona að velta því fyrir okkur hvað við ætlum að gera en aðalmálið er að sletta málningu á allt.

Ég hitti Freyju og Ragnheiði Völu á kaffihúsi í gær og var mjög gaman að hitta þær mæðgur og Ragnheiður Vala er svo sannarlega algjör sjarmör og alltaf brosandi og svo yndisleg.

Á laugardagskvöldinu var það auðvitað Eurovision og var ég bara mjög sátt við úrslitin en ég skil ekki þetta lið sem er að kæra sigurlagið það hlaut afgerandi kosningu 70 þús atkvæði og næsta lag var með minnir mig 30 þús atkvæði. Frekar strange ef það fær svo ekki að fara. Það var annars Eurovisionpartý hjá Möggu og mættu allar viðskiptafræðiskvísurnar og alltaf svo gaman að hitta þær. Það hefur greinilega verið ansi frjósamt á síðasta ári þar sem hvorki meira né minna en 3 kríli á leiðinni, 1 á að koma í júní og 2 í ágúst þannig það er svo sannarlega að fjölga í klúbbnum :)

föstudagur, febrúar 17, 2006

4 STÖRF SEM ÉG HEF UNNIÐ VIÐ:
Í banka
Í sumarbúðum fyrir fatlaða sem fóstra
Í skólagörðunum
Í skartgripabúð

4 KVIKMYNDIR SEM ÉG GÆTI HORFT Á AFTUR OG AFTUR:
Pretty Woman
Nadiu
Love Actually
Stella í Orlofi

4 STAÐIR SEM ÉG HEF BÚIÐ Á:
Lækjarás
Vesturás
Reykás
Melbær
(allt í Árbænum)

4 SJÓNVARPSÞÆTTIR SEM MÉR LÍKAR:
24
Desperate Houswifes
Friends
Sex and the city

4 STAÐIR SEM ÉG HEF HEIMSÓTT Í FRÍI:
París
Riverían
Barcelona
Köben

4 SÍÐUR Á NETINU SEM ÉG HEIMSÆKI DAGLEGA:
www.mbl.is
bloggsíður vinkvennanna
innranetið í vinnunni


4 UPPÁHALDS MATUR:
Humar
Kjúklingur
Mexícanskt
ís

4 STAÐIR SEM ÉG MYNDI FREKAR VILJA VERA Á ÞESSA STUNDINA:
Á sólarströnd í hita og sól
Í dekri og afslöppun
Á skíðum í Ölpunum
Heima sofandi

4 AÐILAR SEM ÉG KLUKKA:
Oddný
Ragga

sunnudagur, febrúar 12, 2006

Það var alveg frábært á Akureyri síðustu helgi þó svo að við komumst ekkert á skíði því það var enginn snjór. Við horfðum á idolið, kjöftuðum, fórum í búðarráp, horfðum á Eurovision,Brynjuís, djömmuðum, fórum í leikhús á Fullkomið brúðkaup sem var alveg rosalega skemmtilegt og mæli ég sko alveg með því.
Þetta var svona algjör stelpuhelgi og svona eiginlega eins og maður hefði skroppið til útlanda, þannig frábær helgi.

Ég bauð svo öllum badmintonstelpunum heim á fimmtudagskvöldinu og var gaman að hitta þær loksins allar aftur. Við erum svo margar hættar að í rauninni er minnihlutinn ennþá að æfa. Við vorum ca 12 og hefðu bara eiginlega ekki fleiri komist fyrir í stofunni hehe...

Við erum orðnir formlegir íbúðaeigendur og fáum líklega afhent bara í lok næstu viku þannig maður ætti kannski að fara að huga að flutningum á næstu dögum.

Jæja nóg af fréttum af mér í bili...það styttist óðum í Londonferðina og get ég varla beðið eftir henni :)

miðvikudagur, febrúar 01, 2006

Jæja þá er lífið loksins að fara að ganga sinn vanagang aftur eftir þetta líka vinnumaraþon sem ég hef verið í síðustu vikurnar. En það er alltaf fín stemning í þessum törnum hjá okkur og ótrúlegt hvað allir eru alltaf jákvæðir og hressir þó svo að svefninn hafi ekki verið upp á marga fiska og unnið út í alveg hið óendanlega. En sem betur fer uppskerum við það sem við sáum og hafa æðstu menn komið persónulega til okkar og þakkað fyrir og send mail sem er að sjálfsögðu mjög gaman að heyra.

En stefnan er tekin norður á Akureyri um helgina þar sem skíðin verða með í för og er planið að fara að heimsækja hana Oddnýju og eyða helginni með henni og Söru sem á eftir að vera rosa gaman.

Annars held ég að febrúar eigi bara eftir að vera hinn fínasti mánuður, strax komið fullt af plönum í að hitta alla sem maður hefur vanrækt síðustu vikurnar sem er bara gaman.