miðvikudagur, desember 28, 2005

Þá fer bara að styttast í hinn endann á jólunum. Ég vona að allir hafi haft það notalegt eins og ég :)
Þið getið lesið um jólaboðið sem var haldið heima hjá mér á annan í jólum á www.anna.is þar er frekar fyndin umfjöllun um þetta fræga jólaboð hjá familíunni minni.

Svakalega er samt erfitt að vakna á morgnana þessa 2 daga og maður er svona frekar lengi í gang.

Björk kom í heimsókn í gærkvöldi og horfðum við á DVD og kjöftuðum, rosalega nice svona eins og í gamla daga bara að hanga og kjafta og svona :) Maður er farinn að gera allt of lítið af þessu undanfarin ár. Svo er planið að heyra í henni Oddnýju eftir vinnu og aldrei að vita nema við gerum slíkt hið sama og við Björk í gær :)

miðvikudagur, desember 21, 2005

Jæja þá er maður bara orðinn 25, vá og komin bara á þrítugsaldurinn. Ég hef stundum hugsað hvað ég verði að gera þegar ég verð 25. Haldiði að ég sé ekki bara með flensu og er veik heima. Ég man varla eftir því hvenær ég var veik síðast held það hafi verið fyrir svona 2 árum.

Ég vona nú samt að ég fari að braggast svo allir geti nú fengið jólagjafir frá mér því ég á eitthvað smá eftir.
Búið að rigna yfir mig mailum og smsum í allan morgun sem er bara gaman :)

sunnudagur, desember 11, 2005

Vá ég trúi því varla ennþá að Unnur Birna hafi unnið keppnina í gær. Ég horfði á hana en byrjaði aðeins of seint og vissi að hún hefði komist í 15 manna úrslitin. Þetta var ekkert smá spennandi og sérstaklega þegar verið var að tilkynna 6 manna úrslitin og svo fyrstu 3 sætin. Ég hélt að sjálfsögðu með Unnir Birnu, Mexíco og Tansaníu.
Ætli nafnið mitt verði ekki aðeins alþjóðlegra eftir þetta hehe..

Annars er allt gott að frétta af mér, það styttist óðum í jólin og það er spurning um að fara að koma sér aðeins í smá jólaskap. Ég er ekki byrjuð að skreyta neitt hmm..sem er ekki nógu gott. En ég er aðeins byrjuð á jólagjöfunum.
Ég var á jólahlaðborði á föstudaginn á Lækjarbrekku og það var mjög gaman, kíktum svo aðeins á Óliver en það var ekkert geðveikt þar ekki eins og síðustu helgi þar sem maður þekkti miklu fleiri.

Mér líður svona hálfpartinn eins og ég sé að læra því ég er að lesa yfir Mastersritgerðina hennar Röggu. Ég er rétt svo að verða hálfnuð en það sem ég er búin að lesa lofar góðu og ég held þetta sé fín ritgerð hjá henni :) Það verður gaman hjá henni þegar hún klárar þetta og eflaust þungu fargi af henni létt.